Skattspor Brims 7,6 milljarðar króna

Verðmætasköpun samstæðu Brims nam 32,7 milljörðum króna á árinu 2019.
Verðmætasköpun samstæðu Brims nam 32,7 milljörðum króna á árinu 2019. mbl.is/​Hari

Verðmætasköpun af rekstri samstæðu Brims hf. á árinu 2019 nam 32,7 milljörðum króna og nam skattbyrði samstæðunnar vegna ársins 2019 tæplega fjórum milljörðum króna eða 12,1%. Þar af er 41% lögbundin gjöld og 27% tekjuskattur lögaðila, að því er fram kemur í samfélagsskýrslu fyrirtækisins sem birt hefur verið á vef þess.

Með verðmætasköpun er átt við samanlagðar rekstrartekjur, fjármunatekjur og söluhagnað.

Í skýrslunni segir að við bætist óbeinir skattar og gjöld sem félög samstæðunnar innheimtu og stóðu skil á og nam sú upphæð 3,6 milljörðum króna á árinu 2019. Skattaspor samstæðunnar nam því samtals tæplega 7,6 milljörðum í fyrra.

Í tölum sem fyrirtækið birtir sést að kolefnisgjald sem Brim greiðir hefur hækkað um 76,5% í krónum talið á árunum 2017 til 2019. Þá hefur tekjuskattur sem fyrirtækið greiðir hækkað mikið, en veiðigjöld lækkað en þó töluvert minna en hækkun tekjuskatts.

Jafnframt kemur fram að 762 starfsmenn störfuðu hjá samstæðu Brims á árinu 2019 þegar miðað er við heilsársstörf og námu launagreiðslur án launatengdra gjalda sem skilað er til yfirvalda og lífeyrissjóða 8,9 milljörðum króna og voru því  27,2% af fjárhagslegri verðmætasköpun samstæðunnar.

mbl.is