„Þótt við lifum á skrítnum tímum þá er eitt sem hvorki er skrítið né hefur breyst á nokkurn hátt en það er að líkamleg og andleg heilsa kemur okkur í gegnum erfiða tíma og styrkir ónæmiskerfið. En það kann að vera erfitt að viðhalda reglubundinni hreyfingu í samgöngubanni á sama tíma og það er sérstaklega mikilvægt að viðhalda góðri heilsu,“ segir Unnar Helgason í heilsupistli sínum fyrir Nettó:
Hreyfing styrkir ónæmiskerfið okkar og þar með baráttu gegn ýmsum veikindum
Þetta er í raun einfölduð skýring á því sem við köllum ónæmi.
Hreyfingarleysi getur aukið líkamsfitu og minnkar liðleika og vöðvastyrk
Alltaf að gera eitthvað!
Á hverjum degi ættum við „alltaf að gera eitthvað“ til þess að huga að heilsunni. Það þarf ekki að vera mikið og við þurfum ekki alltaf að ná hjartslættinum upp og svitna. „Alltaf að gera eitthvað“ getur þýtt að ég borða hollt, hef samband við foreldra mína og spyr hvernig þau hafi það, passa upp á að fá átta tíma svefn og svo framvegis.
Lífið snýst um forgangsröðun og ég hvet þig til þess að setja hreyfingu ofarlega á listann, enda er tækifærið einmitt þegar samkomubann stendur yfir og nægur tími og rúm gefast til að hugsa upp nýjar rútínur fyrir daginn.
Það ert þú sem hefur 100% vald yfir því hvað þú gerir og hvað þú gerir ekki.
Þau okkar sem eiga eftir að veikjast kunna að spyrja sig: kannski hefði ég átt að huga betur að heilsunni til að vera betur undirbúin/n fyrir þessa helv ... veiru! En það góða er að þú ert ekki of sein/n. Þú getur byrjað í dag að gera eitthvað til að huga að heilsunni, hvort sem það er að fara í göngutúr, taka smá þrekæfingu heima í stofu – eða taka réttar ákvarðanir í eldhúsinu.
Gangi þér vel – og mundu: við erum hönnuð til að hreyfa okkur!