Ertu farin að vinna heima eða ert á degi 13 í sóttkví? Hefur þú ekki farið úr náttfötunum síðan samkomubann var sett? Langar þig helst bara að liggja uppi í sófa, borða sælgæti eða ertu farin drekka þér til dægrastyttingar? Eru hendurnar á þér að skrælna eftir allt handsprittið? Ertu komin með rót því þú hefur ekki komist á hárgreiðslustofu og eru gelneglurnar dottnar af? Ef svo er þá er óþarfi að örvænta því hér koma nokkur góð ráð úr heimi hégómavísindanna.
Þurrar hendur
Ef hendurnar á þér eru að skrælna eftir allt sprittið þá þarftu að hlúa að þeim. Þú getur að sjálfsögðu borið á þig handáburð en kannski þurfa hendurnar aðeins meira. Ef þú ert búin að þvo alla húð af höndunum og orðin aum í naglaböndunum þarftu að gefa því gaum. Bára Hafsteinsdóttir snyrtifræðingur hjá Lancôme segir að best sé að ná sér í skál og fylla hana af heitu vatni, eins heitu og þú þolir, og setja 2-3 msk af hárnæringu út í.
„Láttu hendurnar liggja í þessu baði í um það bil 20 mínútur og þerraðu þær vel, jafnvel með grófu handklæði og nuddaðu naglaböndin niður. Það er líka gott að venja sig á að nota naglabursta og nudda hraustlega yfir naglaböndin, til dæmis í hverri sturtuferð. Ef þetta er gert reglulega verður þú aldrei í vandræðum með ofvaxin naglabönd, neglurnar vaxa hraðar og eru heilbrigðari, því að blóðstreymi verður meira í naglbeðnum. Til að losna við þurra húð er þjóðráð að nota góðan kornaskrúbb til dæmis Rose Sugar Scrub og nudda kröftuglega yfir alla húð, neglur og naglabönd og gefa sér góðan tíma, líka notalegt að nudda innan í lófann,“ segir Bára.
Hárið
Við gerð þessarar greinar leitaði ég til meðlima í lokuðum hópi sem ég er með á Facebook og heitir Smartland – Tísku- og förðunarráð. Þar var ein búin að lita á sér hárið heima og var skyndilega orðin svarthærð og aðrar deildu hryllingssögum af ástandinu. Það voru þó tveir hlutir sem skoruðu hæst og það var þurrsjampóið með litnum frá label.m og Wow Root Cover Up. Hið síðarnefnda er svolítið eins og augnskuggi sem fólk ber yfir gráu hárin í rótinni. Það efni er til í mörgum litum og ætti því að henta mörgum. Best er að bera þessi efni í hárið eftir förðun svo farðinn klínist ekki hárlitinn meðfram hárlínunni.
Neglur
Konur sem hafa vanið sig á að fara reglulega í neglur eiga bágt núna því snyrtistofur bjóða ekki upp á slíka þjónustu eins og stendur. Hvað geturðu gert ef gelneglurnar eru að detta af?
„Til þess að fjarlægja gelneglur af án þess að skemma þínar eigin neglur of mikið mælum við með að klippa framan af nöglinni varlega og stytta hana, best er að klippa smáhak á einni hliðinni og endurtaka svo á hinni þar til hún losnar af. Ekki klippa beint framan á því þá getur nöglin öll brotnað. Eftir það mælum við með að nota 180 grit naglaþjöl frá OPI og byrja að pússa nöglina niður, passa að pússa létt ofan á og ná sem mestu geli af án þess að pússa of mikið í eigin nögl. Svo er hægt að skipta yfir í 220-280 grit þjöl sem er mýkri til þess að ná restinni af naglplötunni,“ segir Sandra Vilborg Jónsdótir hjá Artica.
„Svo mælum við með að setja umferð af Miracle Cure frá Sally Hansen eða Nail Envy-styrkingu frá OPI til þess að styrkja nöglina. Svo mæli ég með því að nota olíu á naglaböndin eins og til dæmis Opi Pro Spa Cuticle oil eða Vitamin E oil frá Sally Hansen. Nudda vel naglaböndin og fyrir ofan nöglina þar sem vaxtarvefurinn liggur til að örva blóðflæðið til naglarinnar.“
Láttu sloppinn víkja
Ef þú ert búin að vera í slopp heima í meira en tvær vikur þá verður þú að fara úr honum. Það er ákveðin sjálfsvirðing fólgin í því að klæða sig í borgaraleg föt eða allavega sæmilega útlítandi heimadress til að koma í veg fyrir að þú myglir ekki endanlega. Fólk hættir nefnilega ekki að vera til þótt ástandið sé eins og það er. Notaðu þetta tækifæri og bjóddu sjálfri þér upp á það besta sem völ er á. Fæstar okkar myndu bjóða gestum upp á skrælnaðar hendur, rót, nagaðar neglur og sveitt heimaföt.