Útiloka ekki strok úr sjókvíum á Vestfjörðum

Stofnunin segir ekki hægt að útiloka að fiskar hafi strokið …
Stofnunin segir ekki hægt að útiloka að fiskar hafi strokið úr kvíunum. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Í báðum til­fell­um veidd­ist ekki fisk­ur í net sem lögð voru út í kjöl­far gat­anna. Staðan í dag er sú að Mat­væla­stofn­un fylg­ir nú eft­ir hvoru máli fyr­ir sig,“ seg­ir í svari Mat­væla­stofn­un­ar við fyr­ir­spurn 200 mílna um stöðu mála í kjöl­far þess að upp­götvuðust göt í einni sjókví Arn­ar­lax í Arnar­f­irði 2. apríl og tveim­ur kví­um Sjáv­ar­eld­is (Há­brún hf.) í Ísa­fjarðar­djúpi 20. mars.

Þá seg­ir í svar­inu að ekki sé „hægt að úti­loka að fisk­ur hafi strokið þó svo að fisk­ur hafi ekki veiðst í net­in. Ef strok hef­ur átt sér stað þá get­ur það gefið vís­bend­ingu um að strokið hafi ekki verið um­fangs­mikið þó að ekki sé hægt að full­yrða um slíkt.“

Bent er á að það sé for­gangs­atriði að gera við göt án taf­ar til að koma í veg fyr­ir strok þegar slíkt upp­götv­ast og hef­ur viðgerðum á nótar­pok­um í báðum til­fell­um verið lokið.

Er spurt var hvað fæl­ist í frek­ari eft­ir­fylgni Mat­væla­stofn­un­ar og hver næstu skref yrðu svaraði stofn­un­in: „Eft­ir­fylgni stofn­un­ar­inn­ar felst í eft­ir­liti og það sem kem­ur fram í eft­ir­lit­inu ákv­arðar hvort og þá hver næstu skref verða.“

mbl.is