Gat á sjókví í Patreksfirði

Gat uppgötvaðist á einni sjókví í Patreksfirði.
Gat uppgötvaðist á einni sjókví í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Mat­væla­stofn­un barst til­kynn­ing frá Fjarðalaxi, sem sam­einaðist Arn­ar­laxi 2016, miðviku­dag­inn 15. apríl um gat á nótar­poka einn­ar sjókví­ar Arn­ar­lax við Eyri í Pat­reks­firði, að því er seg­ir í til­kynn­ingu á vef Mat­væla­stofn­un­ar.

Þar seg­ir að gatið hafi upp­götv­ast um kl. 11 hinn 15. apríl við reglu­bundið neðjan­sjáv­ar­eft­ir­lit. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um Arn­ar­lax var gatið á botni nótar­pok­ans eða á 35 metra dýpi og var það um 100 sentí­metra að breidd og 100 sentí­metra að hæð. Í kvínni voru um 100.000 lax­ar með meðalþyngd 6,8 kíló. Neðan­sjáv­ar­eft­ir­lit var áður fram­kvæmt 18. mars og var nótar­poki þá heill.

Mat­væla­stofn­un hef­ur kallað eft­ir gögn­um og upp­lýs­ing­um er varða viðbrögð fyr­ir­tæk­is­ins og er at­vikið til meðferðar hjá stofn­un­inni. Arn­ar­lax lagði út net í sam­ráði við Fiski­stofu til að kanna hvort strok hefði átt sér stað. Net­anna var vitjað í gær, eng­inn lax hef­ur veiðst og liggja net enn úti.

mbl.is