Ísland brotlegt við EES-reglur

Laxeldi hjá Fiskeldi Austfjarða.
Laxeldi hjá Fiskeldi Austfjarða.

Eft­ir­lits­stofn­un EFTA (ESA) hef­ur tekið bráðabirgðaákvörðun um að ís­lenska ríkið hafi gerst brot­legt við regl­ur EES um mat á um­hverf­isáhrif­um þegar það breytti lög­um um fisk­eldi í októ­ber 2018. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Land­vernd.

Bréf ESA sem var sent til um­hverf­is- og auðlindaráðuneyt­is­ins 

„Þá breytti Alþingi lög­um um fisk­eldi með frum­varpi sem samþykkt var sam­dæg­urs og eft­ir afar tak­markaðar umræður á Alþingi.

Með frum­varp­inu var sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra heim­ilað að gefa út bráðabirgðarekstr­ar­leyfi til 20 mánaða til fisk­eld­is­fyr­ir­tækja. Ekki er gert ráð fyr­ir því að slík bráðabirgðal­eyf­is­veit­ing fari í um­hverf­is­mat eða að al­menn­ing­ur og sam­tök al­menn­ings geti komið sjón­ar­miðum sín­um að áður en leyfi er veitt. Lög­in úti­loka enn frem­ur að leyf­is­veit­ing­in sé kærð til óháðs og hlut­lauss aðila á borð við úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá Land­vernd.

Eft­ir­lits­stofn­un­in ESA kemst að þeirri niður­stöðu að lög­in um rekstr­ar­leyfi til fisk­eld­is brjóti í bága við grein­ar 2, 4, 9 og 11 í Evr­ópu­til­skip­un um um­hverf­is­mat.  Brot­in fel­ast í að úti­loka al­menn­ing frá um­fjöll­un um bráðabirgðal­eyf­in og í að gera al­menn­ingi úti­lokað að kæra þau. Sömu­leiðis er brotið á ákvæði um að skyldu til að gilt um­hverf­is­mat liggi fyr­ir þegar veitt eru rekstr­ar- og starfs­leyfi fyr­ir leyf­is­skyld­ar fram­kvæmd­ir og starf­semi.

„Stjórn Land­vernd­ar skoraði strax á sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra og um­hverf­is- og auðlindaráðherra að láta af laga­setn­ing­unni af þeim ástæðum sem ESA hef­ur nú fall­ist á. Ekki var orðið við því. Ef Alþingi og rík­is­stjórn hefðu gefið tíma í fag­leg­an und­ir­bún­ing og færi á umræðu fyr­ir þessa laga­breyt­ingu hefði lík­lega verið hægt að koma í veg fyr­ir setn­ingu þess­ara ólaga. 

EES-regl­ur gera ráð fyr­ir aðkomu al­menn­ings við ákv­arðana­töku við um­hverf­is­mat. Þess­ar EES-regl­ur fela ekki aðeins í sér lýðræðis­leg­an rétt al­menn­ings held­ur stuðla þær líka að fag­legri og skyn­sam­ari ákv­arðana­töku til langs tíma. Það er því allra hag­ur að farið sé eft­ir regl­um um um­hverf­is­mat og aðkomu al­menn­ings að op­in­berri ákv­arðana­töku,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá Land­vernd. 

mbl.is