Leikarinn Leslie Jordan hefur aukist gríðarlega í vinsældum á síðustu vikum og mætti segja að leikarinn sé nú orðinn að Instagram-stjörnu 64 ára gamall.
Jordan þekkir auðvitað frægðina vel en hann er best þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Will & Grace. Á síðustu vikum hefur Jordan sett inn fjölda myndbanda á samfélagsmiðilinn og hlotið milljónir fylgjenda í kjölfarið. Á aðeins nokkrum vikum hefur hann farið úr 800 þúsund fylgjendum upp í 3,6 milljónir fylgjenda.
Myndbönd Jordans þykja skemmtileg og einlæg þar sem hann gefur fylgjendum sínum innlit í líf sitt í sjálfskipaðri einangrun. Hann segist þó ekki ætla að fara á sömu braut og margir áhrifavaldar á Instagram og reyna að græða á forritinu.
Hann segir í viðtali að hann hafi fengið hringingar frá umboðsmanni sínum um að hann geti hagnast á þessu fjárhagslega en segist ekki hafa áhuga á því, þetta sé ókeypis grín.
Jordan segir að gerð myndbandana sé mjög skemmtileg og stytti honum stundir því hann geti hvorki horft á þætti né bíómyndir með handriti.
View this post on InstagramSometimes the mind doesn’t want to forget. #johnritter #mentalporn #billybobthornton #dingaling
A post shared by Leslie Jordan (@thelesliejordan) on Apr 23, 2020 at 8:11am PDT
View this post on InstagramA post shared by Leslie Jordan (@thelesliejordan) on Apr 19, 2020 at 4:56pm PDT