Jógastöðin Sólir fagnaði fimm ára afmæli sínu nýverið og sagðist eigandinn, Sólveig Þórarinsdóttir, vera bæði stolt og hrygg þann dag. Stolt af góðu starfi en hrygg yfir fjárhagserfiðleikum stöðvarinnar.
Smartland flutti frétt um málið þar sem farið var yfir stöðu mála og hvernig aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar hjálpi að sögn Sólveigar, Sólum ekki.
Nú geta stuðningsaðilar jógastöðvarinnar heldur betur lagt sitt að mörkum, þar sem boðið er upp á Sólarbílinn til sölu, upp í leiguskuldina.
„Þrátt fyrir allan samsköpunarmátt okkar og vilja er morgunljóst að það þarf kraftaverk til að komast í gegnum þetta.“