Norska félagið NTS ASA hefur samþykkt að fram fari hlutafjáraukning hjá Fiskeldi Austfjarða hf. (Ice Fish Farm) og hefur íslenska félagið fengið ABG Sundal Collier og DNB Markets til þess að skipuleggja hlutafjárútboð sem áætlað er að fari fram á þessu ári, að því er fram kemur í tilkynningu NTS til norsku kauphallarinnar.
Dótturfélag NTS, Midt-Norsk Havbruk AS., fer með 62,7% hlut í Fiskeldi Austfjarða og kveðst NTS taka þátt í hlutafjárútboðinu til þess að tryggja áframhaldandi eignarhlut yfir 50%.
Fram kemur að Fiskeldi Austfjarða hafi rekstrarleyfi sem heimilar 20.800 tonna framleiðslu á Austfjörðum og að fyrirtækið hafi sótt um leyfi til þess að auka heimilað framleiðslumagn um 16.800 tonn. Áætlanir gera ráð fyrir að félagið skili 6.000 tonnum til slátrunar á þessu ári, 7.000 tonnum árið 2021 og 16.000 tonnum árið 2022.
NTS var stofnað í Noregi árið 1879 í kringum rekstur eimskipa. Í dag kemur fyrirtækið meðal annars að rekstri seiða- og fiskeldis, þjónustuskipum fiskeldis, sjóflutningum og fiskvinnslu.