Samþykkja stækkun gegn skilyrðum

Athafnasvæði Stofnfisks í Vogavík.
Athafnasvæði Stofnfisks í Vogavík.

Skipu­lags­stofn­un hef­ur fall­ist á um­leit­an Stofn­fisks um stækk­un fisk­eld­is við Voga­vík með skil­yrðum sem til send­ur að fjalla um í frummats­skýrslu.

Stofn­fisk­ur óskaði eft­ir því að stækka fisk­eldið í allt að 450 tonna fram­leiðslu, en nú­ver­andi af­kasta­geta fyr­ir­tæk­is­ins er 300 tonn. Meg­in­hluti fram­leiðslunn­ar er laxa­hrogn en einnig laxa- og hrogn­kelsa­seiði.

Í um­sögn Skipu­lags­stofn­un­ar kem­ur fram að leitað hafi verið um­sagna hjá Sveit­ar­fé­lag­inu Vog­um, Fiski­stofu, Heil­brigðis­eft­ir­liti Suður­nesja, Mat­væla­stofn­un, Minja­stofn­un Íslands, Nátt­úru­fræðistofu Íslands, Orku­stofn­un og Um­hverf­is­stofn­un.

Í um­sögn­inni kem­ur m.a. fram að þörf sé á að tryggja upp­sprettu ferskvatns til vinnsl­unn­ar ef af stækk­un verði.

Þá þurfi að meta ólík áhrif út­færsla á frá­rennslis­kerfi frá vinnsl­unni auk þess sem Nátt­úru­fræðistofn­un Íslands og Um­verf­is­stofn­un benda á að stækk­un­in nái til 0,25 ha svæðis á nú­tíma­hrauni sem njóti sér­stakr­ar vernd­ar. Fjalla þurfi um áhrif fram­kvæmd­ar­inn­ar á jarðmynd­an­ir um­hverf­is vinnsl­una.

vi­dar@mbl.is

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: