Segir mistök Hafró kosta allt að 600 milljónir

Axel Helgason, fyrrverandi formaður Landssambands smábátaeigenda, segir að verði mistök …
Axel Helgason, fyrrverandi formaður Landssambands smábátaeigenda, segir að verði mistök Hafrannsóknastofnunar ekki leiðrétt geti það kostað útgerðaraðila 300 til 600 milljónir króna. mbl.is/Ófeigur

„Það er al­ger­lega ótækt að stofn­un sem kenn­ir sig við vís­indi kom­ist upp með það að byggja ráðlegg­ing­ar sín­ar á gagns­laus­um upp­lýs­ing­um úr ára­tuga­göml­um afla­dag­bók­um þegar á auðveld­an hátt á ein­um vinnu­degi er hægt að fá mik­il­væg­ar raun­töl­ur úr raun­heim­um,“ seg­ir Axel Helga­son, fyrr­ver­andi formaður Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda, í aðsendri grein í Morg­un­blaðinu í dag og skor­ar hann á Haf­rann­sókna­stofn­un að end­ur­skoða ráðgjöf sína varðandi veiðar á grá­sleppu.

Bann var sett á frek­ari veiðar á grá­sleppu fyr­ir rétt rúmri viku.

Axel seg­ir að fram hafi komið „óvé­fengj­an­leg gögn og yf­ir­lýs­ing­ar frá fram­leiðend­um um að nýt­ing­ar­tal­an sé röng“ og vís­ar til þess Haf­rann­sókna­stofn­un bygg­ir sögu­leg­ar afla­töl­ur á tunnu­magni árin 1985 til 2008 sem er um­reiknað í magn af óslægðri grá­sleppu.

„Nú hag­ar svo til að þau vís­indi sem lögð voru til grund­vall­ar 12 pró­senta lækk­un á viðmiðun­ar­gildi ráðgjaf­a­reglu varðandi grá­sleppu­veiðar í ár hafa reynst röng. Þetta hef­ur verið ræki­lega staðfest af þeim sem hafa verkað grá­sleppu á Íslandi síðastliðin 40 ár,“ full­yrðir Axel.

Þá seg­ir hann Haf­rann­sókna­stofn­un hafa kom­ist að þeirri niður­stöðu að til að fylla eina staðlaða 105 kílóa tunnu af söltuðum hrogn­um þyrfti 425 kíló af óslægðri grá­sleppu. „Fjór­ir vinnsluaðilar hafa nú sent frá sér yf­ir­lýs­ingu um að skeiki að meðaltali 26 pró­sent­um á töl­um vís­inda­manna Hafró og þeirri nýt­ing­ar­tölu sem fram­leiðend­urn­ir hafa sann­reynt síðustu 40 ár. Hún er að það þurfi að meðaltali 535 kíló af óslægðri grá­sleppu til að fram­leiða eina tunnu af söltuðum hrogn­um,“ út­skýr­ir hann.

Leiðrétt­ing faræl­asta lausn­in

Tel­ur Axel far­sæl­ast að Haf­rann­sókna­stofn­un viður­kenndi meint mis­tök sem lögð voru til grund­vall­ar lækk­un hjá ráðgjafa stofn­un­ar­inn­ar og að niðurstaðan yrði leiðrétt. „Fái hún að standa kost­ar hún ár­lega 300-600 millj­ón­ir í tekjutapi þeirra sem hafa þess­ar veiðar og vinnslu að at­vinnu.“

Skor­ar formaður­inn fyrr­ver­andi á Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, að beita sér til þess að fá Haf­rann­sókna­stofn­un til þess að meta ný gögn og yf­ir­lýs­ing­ar frá fram­leiðend­um.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: