Fiskeldisfyrirtækið Arctic Fish ehf. á Vestfjörðum skilaði á fyrsta ársfjórðungi hagnaði af rekstri fyrir skatta sem nemur 16 milljónum norskra króna, jafnvirði 229 milljóna íslenskra króna. Þetta kemur fram í tilkynningu Norway Royal Salmon ASA (NRS) til norsku kauphallarinnar, en það félag fer með 50% eignarhlut í Arctic Fish.
Charles Høstlund, forstjóri samstæðunnar, kveðst í tilkynningunni ánægður með rekstrarniðurstöðu Arctic Fish þar sem hún sé jákvæð um 18,47 norskar krónur, jafnvirði 264 íslenskra króna, á hvert framleitt kíló. Sú niðurstaða er betri en var hjá framleiðslu NRS í Noregi.
Rekstrarhagnaður NRS fyrir skatta var 75 milljónir norskra króna, jafnvirði um milljarðs íslenskra króna, á fyrsta ársfjórðungi en það gerir 16,53 norskar krónur, 236 íslenskar krónur, á hvert framleitt kíló sem er um 10% minni afgangur en hjá íslenska félaginu.
Mikill samdráttur er í hagnaði NRS á fyrsta ársfjórðungi milli ára og nam hann 162 milljónum norskra króna, jafnvirði 2,3 milljarða íslenskra króna, á sama tímabili í fyrra. Fram kemur í tilkynningunni að kórónuveirufaraldurinn er talinn hafa haft veruleg áhrif í formi lægra markaðsverðs og aukins framleiðslukostnaðar.