Endurskoðun ráðgjafar beint til ráðherra

Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar, segir eðlilegt að Hafrannsóknastofnun leggi …
Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar, segir eðlilegt að Hafrannsóknastofnun leggi mat á það hvort ekki sé ástæða til þess að breyta útgefinni ráðgjöf í grásleppu. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

At­vinnu­vega­nefnd hef­ur óskað eft­ir því að sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra beini því til Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að at­huga hvort ástæða sé til að end­ur­meta ráðgjöf stofn­un­ar­inn­ar vegna grá­sleppu­veiða árs­ins á grund­velli þeirr­ar gagn­rýni sem for­send­ur ráðgjaf­ar­inn­ar hef­ur hlotið. Kem­ur þetta fram í bréfi sem nefnd­in sendi ráðherra á mánu­dag.

Ráðgjöf stofn­un­ar­inn­ar hef­ur hlotið tals­verða gagn­rýni að und­an­förnu, meðal ann­ars vegna þeirra gagna sem hún hef­ur lagt til grund­vall­ar ráðgjöf­inni.

Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir, formaður at­vinnu­vega­nefnd­ar Alþing­is, seg­ir í sam­tali við 200 míl­ur að nefnd­in hafi tekið sam­an þau gögn sem komið hafa fram vegna máls­ins og hafi talið ástæðu til þess að láta skoða hvort ekki sé „eðli­legt að Haf­rann­sókna­stofn­un tæki þessa ráðgjöf til end­ur­skoðunar með vís­an til þess­ara gagna“.

„Við erum búin að senda það frá okk­ur og af­rit til Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Við bíðum átekta áður en við för­um að kalla Hafró til okk­ar og spyrj­ast fyr­ir um hvort þeir hafi skoðað þessi gögn,“ seg­ir hún. „Það er sjálf­sagður og eðli­leg­ur hlut­ur, miðað við að fá fleiri gögn í hend­urn­ar, koma með góða rýni á þau og rök­styðja hvers vegna ætti ekki að end­ur­skoða ráðgjöf­ina,“ bæt­ir Lilja Raf­ney við.

Þá tel­ur hún ástæðu til þess að skoðaðir verði reikn­istuðlar Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, en þá hef­ur meðal ann­ars Axel Helga­son, fyrr­ver­andi formaður Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda, gagn­rýnt.

mbl.is