Vilja koma á laggirnar fiskeldisnámi

mbl.is/Helgi Bjarnason

Lagt er til að komið verði á lagg­irn­ar námi í fisk­eldi með sam­fellu í námi frá fram­halds­skóla í há­skóla í nýrri skýrslu sem Há­skól­inn á Ak­ur­eyri vann fyr­ir at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneytið sem af­hent hef­ur verið sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, að því er seg­ir í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðsins.

Fram kem­ur að ráðuneytið hafi óskað eft­ir því að unn­in yrði óháð út­tekt á námi í fisk­eldi á Íslandi, gerður yrði sam­an­b­urður við nám á þessu sviði í ná­granna­lönd­um Íslands og lagðar fram til­lög­ur um hvað þyrfti að gera til að geta boðið fram nám af þess­ari teg­und.

Í skýrsl­unni er einnig að finna til­lög­ur um að auka megi nám í fisk­eldi bæði á fram­halds- og há­skóla­stigi til að koma til móts við at­vinnu­lífið með auknu og end­ur­bættu náms­fram­boði. „Þar á meðal er tekið fram að mik­il­vægt er að fram­halds­skól­ar þrói og auki fram­boð á námi fyr­ir starfs­menn í fisk­eldi. Lagt er til að ráðinn verði verk­efna­stjóri vegna náms í fisk­eldi á fram­halds- og há­skóla­stigi og að verk­efni hans væru m.a. að leiða starfs­hóp við út­færslu nám­skrár og áfanga­lýs­inga svo og frek­ara skipu­lags náms­ins. Einnig er lagt til að skipað verði fagráð um nám í fisk­eldi á Íslandi,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Háþróaður iðnaður

„Fisk­eldi er tækni­lega háþróaður iðnaður sem bygg­ir á líf­fræðilegri fram­leiðslu sem krefst vel hannaðra ferla og ger­ir kröfu um gæði afurða. Í námi til fisk­eld­is þarf einnig að leggja áherslu á að veita inn­sýn í hlut­verk grein­ar­inn­ar í sam­fé­lag­inu og hlut­verk aðþjóðlegra mat­væla­fram­leiðenda,“ seg­ir í skýrsl­unni.

Þá telja höf­und­ar mik­il­vægt að efla starfsþjálf­un auk bók­náms á sviði líf­fræði, líf­tækni, heil­brigði dýra, tækni, sjó­mennsku og lög­fræði starfs­sem­inn­ar auk ým­issa viðskipta­tengdra greina.

mbl.is