Á annan tug starfa verða til á Patreksfirði

Skjöldur Pálmason, framkvæmdastjóri Odda hf. á Patreksfirði, segir að „með …
Skjöldur Pálmason, framkvæmdastjóri Odda hf. á Patreksfirði, segir að „með tilkomu laxeldisins hafi skapast mörg tækifæri.“ Ljósmynd/Oddi

Fisk­vinnsl­an Oddi hf. á Pat­reks­firði hef­ur ákveðið að hefja vinnslu á laxi sem fram­leidd­ur er í nærum­hverfi fé­lags­ins á Vest­fjörðum af Arn­ar­laxi og Arctic fish, að því er seg­ir í frétta­til­kynn­ingu frá Odda. Gert er ráð fyr­ir að verk­efnið skapi 16 til 18 heils­árs­störf.

Fram kem­ur að Oddi hef­ur fjár­fest vinnslu­línu frá Mar­el sem nú er verið að stilla og hefja próf­an­ir fyr­ir full­unn­ar laxa­af­urðir þar sem lögð er áhersla á bestu mögu­legu nýt­ingu á hrá­efn­inu.

Tel­ur fyr­ir­tækið að hægt sé að há­marka gæði afurðanna með því að nýta ná­lægðina við upp­eld­is­stöðvarn­ar. Sam­kvæmt áætl­un­um mun fyrst um sinn vera unn­in 2.500 til 3.000 tonn af laxi í vinnslu Odda, en  magn kann að aukast í framtíðinni.

Tæki­færi fylgja fisk­eld­inu

„Þetta er gríðarlega spenn­andi verk­efni en á sama tíma mjög krefj­andi þar sem mjög hörð sam­keppni er um öfl­un hágæða laxa­hrá­efni eins og Arn­ar­lax og Arctic Fish fram­leiða. Það er mat okk­ar í Odda að með til­komu lax­eld­is­ins hafi skap­ast mörg tæki­færi og nú sé rétti tím­inn til að hefja vinnslu, þegar slátrun er nán­ast óslit­in alla daga árs­ins. Stöðug­leiki í fram­boði skipt­ir öllu fyr­ir sölu­mögu­leika á fersk­um flök­um dag­lega inn á er­lenda markaði. Með samn­ingn­um er gjald­eyrisöfl­un þjóðar­inn­ar auk­in, sem er ómet­an­legt á þess­um tím­um,“ er haft eft­ir Skjöld Pálma­syni, fram­kvæmda­stjóra Odda, í til­kynn­ing­unni.

Nálægð Patreksfjarðar við eldisstöðvarnar er talin til þess fallin að …
Ná­lægð Pat­reks­fjarðar við eld­is­stöðvarn­ar er tal­in til þess fall­in að tryggja há­marks gæði afurða.
mbl.is