Risavaxin sjókví á leið til Noregs

Stærsta sjókví í heimi á leið til Noregs frá Kína. …
Stærsta sjókví í heimi á leið til Noregs frá Kína. Hún er hugsuð undir úthafseldi í Norður-Noregi fyrir Nordlaks og getur haldið tíföldu magn af laxi miðað við hefðbundnar sjókvíar. Ljósmynd/Nordlaks

Stærsta sjókví sem smíðuð hef­ur verið er nú við strend­ur Namib­íu á leið sinni frá skipa­smíðastöð í Yantai í Kína til Hadseløya í Norður-Nor­egi. Sjókví­in, sem er í eigu norska fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Nor­dlaks, nefn­ist „Havfar­men“, veg­ur um 33 þúsund tonn, er 385 metra löng og 59 metr­ar að breidd. Þetta risa­vaxna mann­virki á að nýta und­ir út­hafseldi á laxi.

Fram kem­ur í um­fjöll­un norska rík­is­út­varps­ins NRK að kostnaður við smíðina sé yfir millj­arði norskra króna, eða yfir 14,4 millj­örðum ís­lenskra króna. Þá mun Havfar­men geta haldið um tíu þúsund tonn­um af eld­islaxi, en hefðbundn­ar kví­ar halda aðeins 750 til 1.000 tonn­um af laxi.

Miðað við meðal­verð á eld­islaxi á mörkuðum í síðustu viku, 55,35 norsk­ar krón­ur á kíló, mun heild­ar­verðmæti þess lax sem er í kvínni á hverj­um tíma nema 553,5 millj­ón­um norskra króna jafn­v­irði tæp­lega átta millj­arða ís­lenskra króna.

Havfarmen sjósett.
Havfar­men sjó­sett. Ljós­mynd/​Nor­dlaks

Um er að ræða fyrri risa­sjókví Nor­dlaks af tveim­ur og hef­ur hún verið á leið til Nor­egs síðan 9. apríl. Sagt er frá því á vef fyr­ir­tæk­is­ins að 8. maí hafi verið byrjað að leggja sjö kíló­metra raf­streng sem eigi að veita eld­is­stöðinni raf­magn. Um 30 til 40 koma að því verk­efni, en raf­streng­ur­inn veg­ur um 90 tonn.

Um­fangs­mikl­ir flutn­ing­ar

Verk­efnið hef­ur verið í und­ir­bún­ingi í fleiri ár, en árið 2017 voru samþykkt áform fyr­ir­tæk­is­ins um tvær eld­is­stöðvar af þess­um toga frá sjáv­ar­út­vegs­ráðuneyt­inu í Nor­egi. Bú­ist er við að Havfar­men komi á áfangastað í sum­ar en óljóst er hvenær starf­semi mun hefjast.

Það er sér­hannaða flutn­inga­skipið Boka Vangu­ard sem flyt­ur mann­virkið milli heims­horn­anna, en skipið er það stærsta sem til er af sinni gerð.

Thom­as Myhre, sölu- og markaðsstjóri hjá NSK Ship Design, seg­ir í sam­tali við NRK að ekk­ert mann­virki til hafs hafi verið byggt sem er lengra en Havfar­men. „Havfar­men er ein­stakt. Þetta er stærsta mann­virki sem flutn­ingsakip hef­ur nokkru sinni flutt.“

Stærðin sést glögglega.
Stærðin sést glögg­lega. Ljós­mynd/​Nor­dlaks
Ljós­mynd/​Nor­dlaks
Það er talsvert umstang að sigla með smíðina frá Kína …
Það er tals­vert umstang að sigla með smíðina frá Kína til Nor­egs. Ljós­mynd/​Nor­dlaks
Ljós­mynd/​Nor­dlaks
Sjókvíin mun halda 10.000 tonnum af laxi.
Sjókví­in mun halda 10.000 tonn­um af laxi. Ljós­mynd/​Nor­dlaks
Ljós­mynd/​Nor­dlaks
Smíðin kostaði um 15 milljarða íslenskra króna.
Smíðin kostaði um 15 millj­arða ís­lenskra króna. Ljós­mynd/​Nor­dlaks








mbl.is