Mótfallin banni við laxeldi í Eyjafirði

Fjallabyggð hafnar banni við laxeldi í sjókvíum í Eyjafirði án …
Fjallabyggð hafnar banni við laxeldi í sjókvíum í Eyjafirði án þess að málið verði skoðað nánar. mbl.is/Sigurður Bogi

Bæj­ar­ráð Fjalla­byggðar leggst ein­dregið gegn hug­mynd­um um að allt lax­eldi í sjó verði bannað í Eyjaf­irði án frek­ari umræðu og sam­ráðs við sveit­ar­fé­lög á svæðinu, að því er fram kem­ur í bók­un í fund­ar­gerð ráðsins. Kem­ur bók­un­in í kjöl­far þess að meiri­hluti bæj­ar­full­trúa á Ak­ur­eyri samþykkti bók­un þar sem skorað er á sjáv­ar­út­vegs­ráðherra að leyfa ekki sjókví­ar í firðinum.

Þá legg­ur bæj­ar­ráð Fjalla­byggðar til að Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, óski nú þegar eft­ir mati á burðarþoli Eyja­fjarðar með til­liti til fisk­eld­is og að í beinu fram­haldi verði unnið áhættumat fyr­ir erfðablönd­un vegna mögu­legs fisk­eld­is í Eyjaf­irði.

„Með upp­bygg­ingu und­an­far­inna ára hef­ur lax­eldi í sjó haslað sér völl sem mik­il­væg at­vinnu­grein á Íslandi um leið og í ljós hafa komið mikl­ir mögu­leik­ar til frek­ari þró­un­ar grein­ar­inn­ar,“ seg­ir í bók­un­inni.

„En á sama tíma og ljóst er að mikl­ir mögu­leik­ar eru til þró­un­ar og vaxt­ar grein­ar­inn­ar þá er einnig ljóst að var­lega þarf að stíga til jarðar. Gæta þarf að áhrif­um, já­kvæðum sem nei­kvæðum, á nátt­úru og hugs­an­leg­um áhrif­um á aðrar at­vinnu­grein­ar sem og sam­fé­lög í heild. Því tel­ur bæj­ar­ráð nauðsyn­legt að gaum­gæfa all­ar hliðar máls og að það sé best gert með öfl­ugu sam­tali og sam­ráði allra sveit­ar­fé­laga við Eyja­fjörð með þátt­töku íbúa og þekk­ing­ar­sam­fé­lags.“

mbl.is