Kristín Sif Björgvinsdóttir útvarpsstjarna á K100 og Aaron Kaufmann eru búin að skrá sig í samband á Facebook. Smartland greindi frá því í febrúar að Kristín Sif hefði fundið ástina á ný eftir að hafa misst unnusta sinn, Brynjar Berg Guðmundsson, en hann lést í október 2018.
Það að skrá sig í samband á Facebook er táknrænt og gefur til kynna að sambandið sé komið á alvarlegt stig.
Parið hefur verið á ferð og flugi upp á síðkastið og heimsótt áhugaverða staði á Íslandi.