Stjörnulöggan Birgir Örn Guðjónson eða Biggi lögga eins og hann er kallaður er skilinn að borði og sæng. Biggi virðist þó ekki vera búinn að missa trúna á ástinni þar sem hann er nú mættur á Tinder og leitar að nýrri konu.
Biggi lögga hefur verið afar vinsæll lögreglumaður í nokkur ár. Hann byrjaði með Facebook-síðuna Biggi lögga árið 2013 til þess að koma með jákvæða punkta inn í umræðuna og gera lögguna örlítið mannlegri.
Biggi hefur ekki bara starfað sem lögreglumaður en árið 2017 gerði hann tímabundið hlé á ferli sínum sem lögreglumaður og hóf störf sem flugþjónn hjá Icelandair. „Lögreglumenn eru vanir að takast á við aðstæður sem enginn annar vill takast á við og í svona flugvélum getur allt komið upp,“ sagði Biggi meðal annars í upphafi flugferils síns í samtali við Smartland.