Útskriftir Menntaskólans í Kópavogi fóru fram 29. maí í Digraneskirkju. Dúx skólans í bóknámi er Nína Ann M. Guðmundsdóttir stúdent af raungreinabraut. Nína hlaut einkunnina tíu 29 sinnum og níu átta sinnum. Meðaleinkunn Nínu er 9,72 sem er þriðja hæsta meðaleinkunn í sögu skólans.
Nemendum var skipt í tvo hópa og voru báðar athafnirnar senda út í beinni útsendingu á netinu. Af verknámsbrautum luku fullnaðarprófi í sinni grein: 21 matreiðslumaður, 10 bakarar, 15 framreiðslumenn og 5 kjötiðnaðarmenn.
Fyrir framúrskarandi árangur á lokaprófi í verklegum greinum fékk Benedikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar kjötiðnaðarmaður sérstök verðlaun.
71 lauk stúdentsprófi af bóknámsbrautum.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir stúdent af raungreinabraut hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir frábæran námsárangur með meðaleinkunn 9,27. Áslaug var á afrekssviði skólans og á að baki 34 landsleiki í knattspyrnu þar af 2 leik með A landsliði.