Fræga fólkið hefur verið duglegt að taka á því í ræktinni og deila með aðdáendum sínum á Instagram.
Jennifer Lopez er fimmtíu ára og í feiknagóðu formi. Hún lætur ekki sitt eftir liggja í ræktinni. Hún drekkur hvorki kaffi né áfengi auk þess sem hún borðar próteinríkan mat. Það fyrsta sem hún gerir á morgnana er að stunda líkamsrækt og segir það vera erfiðara að koma líkamsræktinni fyrir þegar líða tekur á daginn.
View this post on InstagramIf it doesn’t challenge you, it doesn’t change you… #CamoFriday @niyamasol 🤍
A post shared by Jennifer Lopez (@jlo) on May 15, 2020 at 4:43pm PDT
Victoria Beckham leggur áherslu á hreint mataræði og mikla líkamsrækt. Hún segist í viðtali við Harpers Bazaar borða þrjú til fjögur avokadó á dag til þess að halda húðinni góðri auk annarrar trefjaríkrar fæðu. Þá byrjar hún hvern dag á því að drekka eplaedik. Beckham hleypur fimm kílómetra á dag og æfir svo í klukkutíma áður en hún fer til vinnu. Hún heldur mikið upp á líkamsræktarfrömuðinn Tracy Anderson. „Ég vakna snemma og fer í ræktina. Ég þarf að vera öguð og þetta er eini tíminn sem ég hef fyrir sjálfa mig,“ segir Beckham.
View this post on InstagramA post shared by Victoria Beckham (@victoriabeckham) on Dec 11, 2019 at 11:55pm PST
Khloe Kardashian er alltaf í ræktinni og deilir sjálfsmyndum af sér með aðdáendum sínum. Hún var alltaf kölluð feita systirin og líkaði það illa. Hún fór svo að stunda líkamsrækt af miklu kappi 2012 í kjölfar erfiðs skilnaðar við Lamar Odom. Í fyrstu þótti henni viðsnúningurinn erfiður en brátt fór henni að þykja skemmtilegt að mæta í ræktina og reyna á sig.
Kate Hudson elskar að hreyfa sig og leggur áherslu á pílates til þess að styrkja sig. Hún æfir sirka þrisvar til fjórum sinnum í viku. Svo elskar hún einnig að dansa og reynir að dansa sem mest hvort um sé að ræða í ræktinni eða bara heima hjá sér.
View this post on InstagramA post shared by Kate Hudson (@katehudson) on Feb 6, 2019 at 10:28am PST
Rebel Wilson ætlar sér að verða 75 kg í ár og er dugleg að hreyfa sig. Hún æfir sex daga vikunnar og leggur áherslu á bæði styrktarþjálfun og brennslu. Færri vita að Wilson er ekki aðeins frábær leikkona heldur er hún einnig með gráðu í lögfræði og mikil viðskiptakona.
View this post on InstagramA post shared by Rebel Wilson (@rebelwilson) on May 5, 2020 at 2:11am PDT
Chrissy Teigen hefur afslappað viðhorf til líkamsræktar. Hún neitar að fara á kúra og borðar næringarríkan mat. Teigen er hópsál og henni finnst gaman að æfa með öðrum og fer reglulega í líkamsræktartíma. Henni finnst hvetjandi að sjá aðra leggja sig allan fram og fer ósjálfrátt að keppa við aðra í tímunum.
View this post on InstagramWorked out for 5 mins today! Proud because according to math, 5 is more than 0
A post shared by chrissy teigen (@chrissyteigen) on May 4, 2020 at 8:53am PDT