Yfir 40% verðhækkun á fjórum vikum

Fiskeldisfyrirtækjum og starfsfólki þeirra til mikillar gleði hefur verð á …
Fiskeldisfyrirtækjum og starfsfólki þeirra til mikillar gleði hefur verð á afurðinni hækkað mikið að undanförnu. mbl.is/Helgi Bjarnason

Verð á eld­islaxi hef­ur farið hækk­andi að und­an­förnu og hækkaði meðal­verð á mörkuðum um 7,28% í síðustu viku (viku 23) sam­kvæmt vístölu Nas­daq og nam 68,96 norsk­um krón­um á kíló, eða 987 ís­lensk­um krón­um.

Í viku 22 lækkaði meðal­verð um 2,86%, en sú lækk­un kom í kjöl­far mik­ill­ar hækk­un­ar í viku 21 þegar hún var tæp­lega 20%.

Þá hef­ur meðal­verð hækkað um 41,86% á síðastliðnum fjór­um vik­um og rétt rúm þrjú pró­sent á und­an­förn­um tólf vik­um, en fyr­ir um það bil tólf vik­um tók verð að falla og mátti lík­lega rekja það til áhrifa tak­mark­anna sem sett­ar voru til að aftra út­breiðslu kór­ónu­veirunn­ar.

Ef litið er til meðal­verðs á eld­islaxi í hefðbund­inni slát­ur­stærð, þrjú til sex kíló, hækkaði verð um 6,32% og nam 70,74 norsk­um krón­um á kíló, jafn­v­irði 1.013 ís­lensk­ar krón­ur. Þá hef­ur meðal­verð hækkað um 42,96% á und­an­förn­um fjór­um vik­um og 3,96% á und­an­förn­um tólf vik­um.

Verðþróun samkvæmt vísitölu Nasdaq síðastliðið ár.
Verðþróun sam­kvæmt vísi­tölu Nas­daq síðastliðið ár. Mynd/​Skjá­skot
mbl.is