Stefnt að fimmföldun landeldis í Þorlákshöfn

Eldisfyrirtæki eru með mikil áform um uppbyggingu landeldis í Þorlákshöfn.
Eldisfyrirtæki eru með mikil áform um uppbyggingu landeldis í Þorlákshöfn. mbl.is/Sigurður Bogi

Birt hef­ur verið frummats­skýrsla vegna áforma Laxa fisk­eld­is ehf. um að auka fram­leiðslu land­eld­is fyr­ir­tæk­is­ins í Þor­láks­höfn úr 500 tonn­um af laxa­seiðum í 2.500 tonn af laxi og laxa­seiðum, að því er seg­ir á vef Skipu­lags­stofn­un­ar.

Þar seg­ir að áhrif á vatns­gæði og líf í vatni séu óveru­leg, bein og aft­ur­kræf þar sem „frá­rennsli er beint í opið Atlants­haf þar sem öldurót er mikið og straum­ar gríðarlega sterk­ir. Af þeim ástæðum er ólík­legt að fóður­leif­ar safn­ist upp í viðtaka og hafi áhrif á vatns­gæði viðtak­ans eða líf í vatni.“

Jafn­framt er bent á að hægt sé að koma í veg fyr­ir áhrif á fugla­líf með réttri fóðrun og fugla­net­um sem tal­in eru draga veru­lega úr ágangi fugla sem sækja í fóður­leif­ar og fisk í ker­um.

Áður hef­ur verið sagt frá áform­um Ísþórs ehf. um að tvö­falda seiðafram­leiðslu sína í Þor­láks­höfn, en það fyr­ir­tæki er í eigu Arn­ar­lax og Fisk­eld­is Aust­fjarða.

mbl.is