Óska eftir álitum um bann við fiskeldi

Sunnanverður Norðfjarðarflói er eitt þeirra svæða sem er til umræðu …
Sunnanverður Norðfjarðarflói er eitt þeirra svæða sem er til umræðu að banna fiskeldi. Ráðuneytið hefur óskað eftir umsögnum sveitarfélaga og stofnana. Ljósmynd/Kristín Hávarðsdóttir

At­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneytið hef­ur óskað eft­ir um­sögn­um frá Fiski­stofu, Haf­rann­sókna­stofn­un, Mat­væla­stofn­un og viðkom­andi sveit­ar­fé­lög­um um hvort rétt sé að lýst verði yfir banni við eldi lax­fiska af eld­is­stofni í sjókví­um í Eyjaf­irði, Jök­ul­fjörðum og í sunn­an­verðum Norðfjarðarflóa, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðsins.

Vísað er til ákvæðis laga um að ráðherra sé heim­ilt að feng­inni um­sögn að tak­marka eða banna fisk­eldi eða ákveðnar eldisaðferðir í ein­staka fjörðum, fló­um eða á svæðum sem telj­ast sér­lega viðkvæm gagn­vart fisk­eldi.

Eyja­fjörður, Jök­ulf­irðir og sunn­an­verður Norðfjarðarflói eru ekki meðal gild­andi yf­ir­lýstra friðun­ar­svæða. „Ekk­ert þess­ara svæða hef­ur verið burðarþols­metið og eng­in rekstr­ar­leyfi eða um­sókn­ir um rekstr­ar­leyfi eru til staðar á þess­um svæðum,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Til stend­ur að Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, haldi op­inn fund um fisk­eldi í Hofi á Ak­ur­eyri í kvöld.

mbl.is