Losuðu veiðarfæri af hnúfubak

Hnúfubakurinn var ekki samvinnuþýður til að byrja með.
Hnúfubakurinn var ekki samvinnuþýður til að byrja með. Ljósmynd/Skjáskot

Landhelgisgæslan hafði samband við björgunarsveitina Geisla og bað hana um að fara um 50 sjómílur austur af Fáskrúðsfirði í nótt og reyna að losa veiðarfæri af hnúfubak.

Að sögn Grétars Helga Geirssonar, formanns Geisla, var hvalurinn með bauju, belg og eitthvað af línu fast við sporðinn og átti líkast til í erfiðleikum með að kafa.

Ósamvinnuþýður til að byrja með

Þrír úr björgunarsveitinni fóru á bátnum Hafdísi með hnífa á prikum og króka meðferðis. Grétar Helgi segir að verkefnið hafi gengið ágætlega. Hvalurinn var ekki samvinnuþýður til að byrja með þegar eltingarleikurinn hófst en loks náðu björgunarsveitarmennirnir veiðarfærunum og tókst að skera þau í burtu. Hluti þeirra fór í skrúfu bátsins en einnig tókst að skera þau í burtu þaðan. 

„Hann hélt sína leið, komst í kaf og kafaði bara strax og hann var laus við þetta,“ segir Grétar spurður út í afdrif hvalsins. Eitthvað hafði hann þó særst eftir að línan hafði skorist í hold hans. Björgunarsveitin hefur ekki áður þurft að glíma við verkefni sem þetta og er Grétar ánægður með að allt fór vel.

mbl.is