Hafró leiðréttir ráðgjöf vegna sullprósentu

Tekist hefur verið á um hvernig hafi verið staðið að …
Tekist hefur verið á um hvernig hafi verið staðið að grásleppuvertíðinni af hálfu stjórnvalda. Útgefin ráðgjöf hefur nú verið leiðrétt. mbl.is/Hafþor Hreiðarsson

Til­hög­un grá­sleppu­vertíðar­inn­ar í ár og ráðgjöf Haf­rann­sókna­stofn­un­ar hef­ur sætt mik­illi gagn­rýni og virðist stofn­un­in í dag, með nýrri grein­ingu og leiðréttri ráðgjöf, hafa gefið eft­ir í deil­unni. Áður hafði stofn­un­in vísað allri gagn­rýni á bug.

Haf­rann­sókna­stofn­un hef­ur end­ur­skoðað út­gefna ráðgjöf vegna grá­sleppu­veiða fyr­ir fisk­veiðiárið 2019/​2020 og ráðlegg­ur nú 5.200 tonn í stað þeirra 4.646 tonna sem ráðlagt var áður. Mun­ar því 12% á fyrri og seinni ráðgjöf og er um að ræða leiðrétt­ingu vegna þriggja atriða, upp­lýs­ir stofn­un­in á vef sín­um.

Í grein­ing­unni seg­ir að í fyrri grein­ingu stofn­un­ar­inn­ar hafi verið gerð tvenn mis­tök. Ann­ars veg­ar hafi prentvilla í skriftu leitt til „rangr­ar hreins­un­ar sem hafði áhrif á hlut­fallstölu eins verk­un­arstigs“ og hins veg­ar leiddu mis­tök „í hreins­un til þess að hrogna­magn í tunn­ur nokk­urra báta var van­metið“.

Með þessu er Haf­rann­sókna­stofn­un að vísa til þeirr­ar aðferðarfræði sem beitt er þegar sögu­leg­um töl­um um fram­leiðslu­magn er um­reiknað til þess að kort­leggja veiðar fyrri ára, 1985 til 2008, en þá var afla­skrán­ing ekki viðhöfð með sama hætti og í dag.

Lögðu sull á hrogn­in

Þá seg­ir Haf­rann­sókna­stofn­un frá því að auk hinna tveggja mistaka, sem sagt hef­ur verið frá, var 20% „sull­pró­senta“ sem Fiski­stofa dreg­ur frá hrogna­magni við skrán­ingu í gagna­grunn, lögð aft­ur ofan á land­an­ir hrogna fyr­ir árin 2008 til 2016.

„Sam­an­lagt leiddi þetta til þess að meðal­vísi­tala veiðihlut­falls sem miðað er við í ráðgjaf­ar­reglu hækkaði úr 0,67 í 0,75, eða aft­ur í fyrra horf ráðgjaf­ar­reglu sem stuðst hef­ur verið við árin 2012-2019. Miðað við þess­ar nýju for­send­ur hef­ur Haf­rann­sókna­stofn­un hækkað ráðlagðan heild­arafla á grá­sleppu­vertíðinni 2020 úr 4.646 í 5.200 tonn, og fyr­ir vertíðina 2021 hækk­ar upp­hafs­ráðgjöf úr 1.459 í 1.634 tonn,“ út­skýr­ir stofn­un­in.

Bent er á að heild­arafli vertíðar­inn­ar er kom­inn í 5.035 tonn sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Fiski­stofu.

mbl.is