Fiskeldisfyrirtækjum á Íslandi mun fara fækkandi á næstu árum þar sem þau munu reyna að mynda hagkvæmari rekstrareiningar í gegnum samruna og samstarf. Þetta kom fram í máli Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra ráðgjafafyrirtækisins Mar Advisors, á netmálfundi Undercurrent News.
Þar sagði Magnús að í heild eru nú um tíu til tólf fyrirtæki á landinu sem eru í eldisrekstur á landi eða í sjó. Þá sé staðan sú að það séu einfaldlega of mörg fyrirtæki í eldisgreininni og áberandi þörf á að þau sameini krafta sína, að sögn hans. „Það kæmi mér ekki á óvart ef við sjáum þau fækka niður í fjögur eða fimm, og þetta mun gerast á næstu tveimur eða þremur árum,“ fullyrti hann.
„Ég held hvað fjárfesta varðar, væri ég ekki hissa ef íslenskt fjármagn taki meiri þátt í greininni, bæði stofnanafé frá lífeyrissjóðum og frá einkafyrirtækjum,“ sagði Magnús.