Kaupa þrjú ný björgunarskip

Björgunarskipið Oddur V. Gíslason á siglingu.
Björgunarskipið Oddur V. Gíslason á siglingu. mynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu forsætisráðherra um áframhaldandi samstarf ríkisins og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar um kaup á þremur nýjum björgunarskipum.

Tillagan gerir ráð fyrir 150 milljóna króna árlegri fjárveitingu úr ríkissjóði í þrjú ár með fyrirvara um breytingar og samþykki Alþingis. Samhliða verði gert samkomulag við Slysavarnarfélagið Landsbjörg um fjármögnun og viðhald björgunarskipanna til lengri tíma, að því er segir í tilkynningu.

Tillögurnar byggja á vinnu starfshóps sem var skipaður eftir að Alþingi samþykkti á 149. löggjafarþingi að vísa tillögu um eflingu björgunarskipaflota Slysavarnarfélagsins Landsbjargar til ríkisstjórnar. Starfshópurinn heldur áfram störfum og mun fela Ríkiskaupum útfærslu útboðslýsingar.

mbl.is