Marta María Jónasdóttir, fréttastjóri dægurmála á mbl.is, er stödd á Siglufirði þar sem mikils jarðskjálfta varð vart nú rétt eftir þrjú. Hún segir fólki hafa brugðið mjög, skjálftann hafa verið mikinn og tiltölulega lengi að ganga yfir.
Jarðskjálftinn var 5,3 að stærð og varð 18,1 km norðvestur af Gjögurtá klukkan 15:05. Hann fannst vel á Siglufirði, Akureyri og í Hrísey.
„Við sátum fyrir utan Fríðu kaffihús hér í sólinni og allt í einu sá maður bara rúðurnar á verkstæðinu við hliðina á okkur ganga til. Þetta voru nokkrar sekúndur og svo bara leið þetta hjá og sólin hélt áfram að skína,“ segir Marta.
Marta segir skjálftann minna á 17. júní skjálftann árið 2000.
Skömmu eftir skjálftann fundust nokkrir eftir skjálftar upp úr 3 að stærð.
Viðmælandi mbl.is í Hrísey sagði að hús hafi nötrað.
Skjálftahrina hefur staðið yfir á svæðinu síðan um hádegi í gær en á milli klukkan sjö og átta í gærkvöldi færðist aukið líf í hrinuna. Tíu skjálftar yfir 3 að stærð hafa orðið síðan klukkan sjö í gærkvöldi.