Fjórir hafa verið fluttir á slysadeild vegna eldsvoða sem upp kom í íbúðahúsnæði á horni Bræðraborgarstígs og Vesturgötu. Tveir hafa verið handteknir á staðnum af sérsveit ríkislögreglustjóra.
Að sögn lögreglu stukku tveir út um glugga hússins þegar það stóð í ljósum logum. Grunur er um að fíkniefna hafi verið neytt í húsinu og hafði lögregla afskipti af húsráðendum í gærkvöld.
Á tíma virtist slökkviliðið vera að ná tökum á eldinum og voru eldtungur frá húsinu ekki lengur sjáanlegar. Þá eru íbúar í nágrenni hvattir til þess að loka gluggum og halda sig fjarri eldsvoðanum.