Ein vinsælasta samfélagsmiðlastjarnan hættir

Jenna Marbles er hætt.
Jenna Marbles er hætt. skjáskot/Youtube

Jenna Mour­ey, bet­ur þekkt sem Jenna Mar­bles á sam­fé­lags­miðlum, hef­ur ákveðið að loka youtu­be-rás sinni. Jenna var ein af þeim fyrstu sem slógu í gegn á sam­fé­lags­miðlum.

Jenna til­kynnti í gær að hún ætlaði að hætta að fram­leiða mynd­bönd fyr­ir youtu­be-rás sína, en yfir 20 millj­ón­ir eru áskrif­end­ur að henni. Í 11 mín­útna löngu mynd­bandi út­skýr­ir Jenna af hverju hún ætl­ar að hætta og biðst af­sök­un­ar á efn­inu sem hún hef­ur fram­leitt í gegn­um tíðina.

Hún baðst sér­stak­lega af­sök­un­ar á mynd­bandi þar sem hún birt­ist í blackface-gervi og gerði grín að rapp­ar­an­um Niki Minaj.

„Mig langaði til að segja ykk­ur að það var ekki ætl­un mín að gera blackface-mynd­band. Ég veit ekki hvernig ég á að út­skýra þetta öðru­vísi, en það skipt­ir ekki máli, það sem skipt­ir máli er að ég særði fólk. Ég er miður mín vegna þess. Þetta var ekki í lagi og er búið að vera á net­inu allt of lengi,“ sagði Jenna. 

mbl.is