Jóhannes Kr. Kristjánsson er líklega þekktasti rannsóknarblaðamaður Íslands. Eftir margra mánaða vinnu varð umfjöllun hans um Panamaskjölin til þess að tugþúsundir mótmæltu og Sigmundur Davíð þurfti að hætta sem forsætisráðherra. Í viðtali við Sölva Tryggvason í podcasti Sölva upplýsir Jóhannes að hann hafi boðið Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni átta sinnum í viðtal áður en þátturinn um Panamaskjölin kom út, en án árangurs.
„Við buðum honum átta eða níu sinnum í viðtal … það var sanngjarnt að bjóða honum það,“ segir Jóhannes, sem talar jafnframt í viðtalinu um tímabilið áður en umfjöllunin fór í loftið, þegar hann mátti ekki segja neinum hvað hann væri að vinna við. Fólkið í kringum hann og konuna hans var farið að efast um að það væri í lagi með hann.
„Vinkonur og tengdaforeldrar Brynju minnar voru farnir að spyrja: Hvaða aumingja ertu með? Hann er ekkert að vinna og ekkert að gera,“ segir Jóhannes í viðtalinu við Sölva.
Í viðtali við Sölva Tryggvason í nýju podcasti Sölva talar Jóhannes meðal annars um það sem gekk á á bak við tjöldin í sumum af stærstu málunum hans, það hvernig hjartað hefur alltaf drifið hann áfram í vinnu og hvernig hann vann úr því að missa dóttur sína.
Viðtal Sölva við Jóhannes má sjá hér: