Rúmlega 2.000 kandídatar voru brautskráðir úr grunn- og framhaldsnámi í útskriftarathöfnum Háskóla Íslands í Laugardalshöll í dag. Vegna fyrirmæla sóttvarnayfirvalda um takmörkun á samkomum voru engir gestir viðstaddir athafnirnar en beint streymi var fyrir aðstandendur kandídata og önnur áhugasöm.
Samanlagt voru 1.112 kandídatar brautskráðir úr grunnnámi að þessu sinni og 938 úr framhaldsnámi.
Á fyrri brautskráningarathöfninni fengu kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá heilbrigðisvísindasviði og verkfræði- og náttúruvísindasviði útskriftarskírteini sín. Samtals brautskráðist 501 frá fyrrnefnda sviðinu og 283 frá því síðarnefnda.
Seinni athöfnina sóttu kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá félagsvísindasviði, hugvísindasviði og menntavísindasviði. Þar brautskráðust 593 frá félagsvísindasviði, 270 frá hugvísindasviði og 403 frá menntavísindasviði.
Áhersla var lögð á að athöfnin væri örugg m.t.t. sóttvarna og var hún skipulögð í samráði við sóttvarnayfirvöld. Þannig var Laugardalshöllinni skipt í tvö svæði, merkt A og B, og var kandídötum deilt á þau svæði í athöfnunum. Enn fremur var boðið upp á sérstakt svæði með tveimur metrum á milli sæta fyrir þau sem vildu.
Væntanlega verður nokkuð um útskriftarveislur í kvöld og sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, í samtali við mbl.is fyrr í dag að hann hefði áhyggjur af því að smit gætu komið upp í veislunum, en dæmi eru um slíkt frá síðustu helgi.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flutti ávarp við athöfnina og þá ávörpuðu Bergrós Fríða Jónasdóttir, BS í rafmagns- og tölvuverkfræði, og Isabel Alejandra Díaz, BA í stjórnmálafræði og spænsku og nýkjörinn forseti Stúdentaráðs, gesti fyrir hönd brautskráningarkandídata.
Háskóli Íslands brautskráði 399 kandídata í febrúar síðastliðnum og því hafa alls 2.449 útskrifast frá skólanum það sem af er ári.