Stefnt að sjö þúsund tonna eldi í Stöðvarfirði

Sjókvíar Fiskeldi Austfjarða í Fáksrúðsfirði. Fyrirtækið undirbýr nú einnig 7 …
Sjókvíar Fiskeldi Austfjarða í Fáksrúðsfirði. Fyrirtækið undirbýr nú einnig 7 þúsund tonna eldi í stöðvarfirði. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Frummats­skýrsla vegna mats á um­hverf­isáhrif­um af fyr­ir­huguðu 7.000 tonna lax­eldi í Stöðvarf­irði hef­ur verrið birt á vef Skipu­lags­stofn­un­ar. Það er Fisk­eldi Aust­fjarða ehf., einnig þekkt sem Ice Fish Farm, sem stend­ur að fyr­ir­huguðu eldi. Fram kem­ur í frummats­skýrsl­unni að heilt yfir verði áhrif­in óveru­leg og að flest nei­kvæð áhrif á nærum­hverfi sjókví­anna séu að mestu eða öllu leyti aft­ur­kræf.

Fyr­ir­tækið er þegar með rekstr­ar­leyfi fyr­ir 20,8 þúsund tonna eldi á Aust­fjörðum, þar af 9.800 tonn­um í Beruf­irði og 11.000 tonn­um í Fá­skrúðsfirði.

„Áhrif­in á botn­dýra­líf und­ir kví­un­um og næst þeim (áhrifa­svæði) verða tíma­bundið tals­vert nei­kvæð meðan á rekstri stend­ur en eru aft­ur­kræf. Áhrif­in í og við næsta ná­grenni kví­anna (strandsvæði) munu verða óveru­leg meðan á rekstri stend­ur en eru aft­ur­kræf. Sé litið til áhrifa í Stöðvarf­irði í heild þá eru áhrif á botn­dýra­líf tal­in verða óveru­leg.“

Lít­il hætta á sjúk­dóm­um

Ekki er tal­in mik­il hætta á að sjúk­dóm­ar ber­ist í villta stofna frá eld­is­stöðinni þar sem búsvæði villtra laxa eru fjarri fyr­ir­hugaðri eld­is­stöð. Þá er einnig bent á góða sjúk­dóma­stöðu hér á landi auk bólu­setn­ing­ar eld­is­seiða. Ekki er tal­in hætta á að smit ber­ist í kræk­linga­eldi Stöðvar­dals, þar sem um óskyld­ar teg­und­ir er að ræða og eld­is­svæðið er staðsett sunn­an­meg­in í firðinum und­an straum­stefnu.

„Laxal­ús sem á upp­runa sinn í eld­islaxi get­ur haft bein en aft­ur­kræf áhrif á villta lax­fiska. Að teknu til­liti til al­mennra um­hverf­is­skil­yrða, skipu­lags eld­is, lágr­ar smittíðni á villt­um stofn­um, stærðar villtra lax­fiska­stofna og mót­vægisaðgerða má bú­ast við að áhrif­in verði óveru­leg. Það er því tal­in lít­il hætta á að villt­ir lax­fisk­ar skaðist af laxal­ús vegna fram­kvæmd­ar­inn­ar,“ seg­ir í skýrsl­unni.

Gott fyr­ir at­vinnu­lífið

Að mati skýrslu­höf­unda munu áhrif á sam­fé­lag á fram­kvæmd­ar­tím­an­um vegna flutn­ings eld­is­búnaðar og út­setn­ing­ar eldisk­vía vera tals­vert já­kvæð á íbúaþróun, at­vinnu­líf, ná­læg sveit­ar­fé­lög og op­in­bera þjón­ustu.

mbl.is