50 sóttu um tvö stjórnunarstörf hjá Síldarvinnslunni

Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði undir Strandartindi.
Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði undir Strandartindi. Ljósmynd/Ómar Bogason

Yfir 50 umsóknir bárust Síldarvinnslunni þegar auglýst var á dögunum eftir umsækjendum í stöður rekstrastjóra uppsjávarfrystingar og rekstrastjóra útgerðar, að því er segir á vef fyrirtækisins.

Fram kemur að gert hafi verið ráð fyrir talsverðum fjölda umsókna og að þess vegna hafi Attentus-mannauður og ráðgjöf verið fengið til þess að annast ráðningaferlið. Umsóknarfrestur rann út 28. júní og vinnur fyrirtækið nú úr umsóknum.

„Við ákváðum að leita aðstoðar utanaðkomandi aðila við ráðningaferlið. Það var ekki síst gert vegna þess að við reiknuðum með því að margar umsóknir yrðu frá einstaklingum búsettum í nærumhverfinu sem við hefðum persónulega tengingu við,“ segir Hákon Ernuson starfsmannastjóri.

„Með því að fá aðstoð óháðs aðila tryggjum við að allar umsóknir eru rýndar og metnar á sama grunni. Áhugi á störfunum var mikill og bárust yfir 50 umsóknir í þessi tvö störf.“

mbl.is