Norskt sölufyrirtæki annast sölu á íslenskum laxi

Áður hefur fyrirtækið selt íslenskan eldislax undir merki fyrirtækisins, en …
Áður hefur fyrirtækið selt íslenskan eldislax undir merki fyrirtækisins, en nú verður breyting þar á og mun sá íslenski vera seldur undir merkjum Iceborn. Mynd/Seaborn

Eld­islax frá þrem­ur eld­is­fyr­ir­tækj­um hér á landi, Lax­ar fisk­eldi, Fisk­eldi Aust­fjarða (Ice Fish Farm), og Arctic Fish, mun nú vera seld­ur er­lend­is und­ir sam­eig­in­lega ís­lenska vörumerk­inu Ice­born sem kynnt var í síðustu viku, en það er norska sölu­fyr­ir­tækið Sea­born sem mun ann­ast söl­una.

„Við höf­um í fleiri ár unnið með ís­lensk­an lax sem hef­ur verið fram­leidd­ur á Aust­ur­strönd Íslands, hjá Ice Fish Farm og Lax­ar. […] En nú höf­um við gert samn­ing við fram­leiðenda á Vest­fjörðum, Arctic Fish, sem ger­ir það að verk­um að við höf­um meira magn,“ seg­ir Kjersti Haugen, rekstr­ar­stjóri Sea­born, í sam­tali við 200 míl­ur.

Kjersti Haugen, rekstrarstjóri Seaborn.
Kjersti Haugen, rekstr­ar­stjóri Sea­born. Ljós­mynd/​Sea­born

Hún seg­ir að með auknu magni sé hægt að tryggja af­hend­ingu all­an árs­ins hring sem er for­senda þess að afurðin geti staðið und­ir eig­in vörumerki. Þá sé til­gang­ur nýs vörumerk­is að vekja at­hygli á afurðinni. „Þetta er leið til þess að auka þekk­ingu neyt­enda á ís­lenska lax­in­um og ágæti hans.“

Sea­born er sölu­fyr­ir­tæki í eigu tíu smærri norskra fisk­eld­is­fyr­ir­tækja og hef­ur verið starf­rækt frá ár­inu 2001. Þá stund­ar fyr­ir­tækið sölu til yfir 60 ríkja um heim all­an og á þar með trausta innviði fyr­ir sölu í Banda­ríkj­un­um, Asíu og í Evr­ópu, að sögn Haugen.

Mikl­ar vænt­ing­ar

„Þrátt fyr­ir þessa kór­ónu­tíma og hlut­ir séu ekki eins og venju­lega, þá telj­um við að Banda­rík­in og Asía séu öfl­ug svæði fyr­ir vörumerki af þess­um toga. Síðan bæt­ist við að fram­leiðend­ur á Íslandi hafa aðra vott­un fyr­ir fisk­inn sinn sem skap­ar grund­völl fyr­ir sókn á markaði í Evr­ópu. Við mun­um taka fisk­inn með okk­ur um heim all­an,“ seg­ir hún.

Spurð hvort fyr­ir­tækið hafi fundið fyr­ir eft­ir­spurn eft­ir ís­lensk­um laxi, svar­ar Haugen: „Við vilj­um skapa eft­ir­spurn­ina. Ég vil benda á að orðspor ís­lensks sjáv­ar­fangs, sér­stak­lega hvít­fisks, er mjög gott víða um heim kannski sér­stak­lega í Banda­ríkj­un­um. Þar merk­ir Ísland gæði og það sem hvít­fisk­grein­in hef­ur gert er hreint frá­bært og við telj­um að hér sé einnig rými fyr­ir lax­inn.“

Hún seg­ir upp­runa lax­ins, hafið um­hverf­is Ísland, verður mik­il­væg­ur þátt­ur í sölu- og markaðssetn­ingu vörumerk­is­ins. „Við höf­um mikl­ar vænt­ing­ar.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: