Áform uppi um kassaverksmiðju fyrir laxeldið

llur lax fer í frauðplastskössum og þarf laxeldið því marga …
llur lax fer í frauðplastskössum og þarf laxeldið því marga kassa. Myndin er frá pökkun á Bíldudal. mbl.is/Helgi Bjarnason

Sveit­ar­stjórn Djúpa­vogs­hrepps hef­ur samþykkt að út­hluta lóð á at­hafna­svæði við Innri-Gleðivík á Djúpa­vogi fyr­ir bygg­ingu frauðplasts­kassa­verk­smiðju. Kass­arn­ir eru ætlaðir fyr­ir flutn­ing á laxi en rekið er laxaslát­ur­hús fyr­ir Aust­ur­land á Djúpa­vogi. Stefnt er að því að hefja fram­leiðslu á köss­um næsta vor.

„Það hafa verið áform hjá okk­ur lengi um að koma þessu í gang. Ýmis áföll sem dunið hafa yfir hafa frestað þeim,“ seg­ir Elís Hlyn­ur Grét­ars­son, einn af eig­end­um sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Ósness sem hyggst standa fyr­ir upp­bygg­ing­unni í sam­vinnu við norskt fyr­ir­tæki sem rek­ur slík­ar verk­smiðjur um alla Evr­ópu. Kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn er eitt þeirra áfalla sem fyr­ir­tækið varð fyr­ir.

Tvær verk­smiðjur fram­leiða frauðkassa fyr­ir fisk­eldi og ann­an fisk hér á landi en Elís seg­ir að vand­ræði séu með flutn­inga yfir endi­langt landið. Hver kassi er fyr­ir­ferðar­mik­ill þótt hann sé aðeins um 600 grömm að þyngd og því er aðallega verið flytja loft frá Hafnar­f­irði til Djúpa­vogs þegar kass­arn­ir eru flutt­ir aust­ur, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðiu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: