Seinkun er á ferð Herjólfs sem átti að leggja af stað til lands klukkan 9:30 í morgun, en eins og áður hefur verið greint frá siglir gamli Herjólfur í dag í stað þess nýja vegna verkfalls starfsmanna Herjólfs sem eru í Sjómannafélagi Íslands.
Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., segir að ástæðan sé sú að gamli Herjólfur hafi ekki verið færður lengi. Skipið sé búið að vera við bryggju um langan tíma svo það taki aðeins meiri tíma en búist var við að koma honum af stað.
Guðbjartur segir að skipið muni sigla af stað hvað úr hverju. Átta siglingar eru alls fyrirhugaðar í dag á milli lands og Eyja og segir Guðbjartur að þeim ætti ekki að seinka vegna þessa.
Afleysingafólk, sumarstarfsmenn og aðrir starfsmenn Herjólfs sem eru ekki í Sjómannafélagi Íslands eru í áhöfn dagsins. Formaður Sjómannafélags Íslands og formaður samninganefndar félagsins telja ákvörðun Herjólfs um að sigla þrátt fyrir verkfall vera verkfallsbrot en Guðbjartur segir slíkt af og frá.