Laxinn dafnar vel í Fáskrúðsfirði

Fáskrúðsfjörður Fiskeldi Austfjarða er með fjórtán laxeldiskvíar í Fáskrúðsfirði og …
Fáskrúðsfjörður Fiskeldi Austfjarða er með fjórtán laxeldiskvíar í Fáskrúðsfirði og mun framleiða þar ellefu þúsund tonn af laxi í fyllingu tímans. Burðarþol fjarðarins er ekki fullnýtt með því. Þorpið sem áður var nefnt Búðir eða Búðaþorp er innar í firðinum og sést til þess á myndinni. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Eldi Fisk­eld­is Aust­fjarða á laxi í sjókví­um í Fá­skrúðsfirði geng­ur vel. Stjórn­ar­formaður fyr­ir­tæk­is­ins seg­ir að fjörður­inn virðist vera mjög góður til að ala lax.

Fisk­eldi Aust­fjarða hóf starf­semi í Fá­skrúðsfirði í júní á síðasta ári með út­setn­ingu seiða. Þar eru nú fjór­tán sjókví­ar sem þjónað er af öfl­ug­um fóðurpramma. „Þetta hef­ur gengið mjög vel. Þarna virðast vera mjög góðar aðstæður til að ala lax,“ seg­ir Guðmund­ur Gísla­son stjórn­ar­formaður.

Burðarþol fjarðar­ins er metið 15 þúsund tonn og hef­ur Fisk­eldi Aust­fjarða leyfi til eld­is 11 þúsund tonna. Guðmund­ur seg­ir að fyr­ir­tækið muni full­nýta leyfi sitt á næstu árum og raun­ar fari þau seiði sem þar eru í eldi langt með það. Byrjað verður að slátra upp úr kví­un­um um eða eft­ir næstu ára­mót.

Fisk­eldi Aust­fjarða á aðild að Bú­landstindi á Djúpa­vogi og þar er öll­um laxi frá fyr­ir­tæk­inu og Löx­um fisk­eldi í Reyðarf­irði slátrað. Þar hef­ur verið hlé und­an­farn­ar vik­ur en slátrun á laxi úr Beruf­irði hefst ein­hvern næstu daga. Verður nokkuð jöfn slátrun næstu mánuði, að sögn Guðmund­ar.

Megnið af afurðunum fer á Banda­ríkja­markað, til Whole Foods-versl­ana­keðjunn­ar. Munu fara að meðaltali um 100 tonn á viku með skip­um í gegn um Evr­ópu þar sem fisk­ur­inn er flakaður eða skor­inn í bita. Verð á al­menn­um markaði er frek­ar lágt, eins og oft­ast á þess­um tíma árs, en Guðmund­ur seg­ir að fyr­ir­tækið selji fisk­inn til Banda­ríkj­anna sam­kvæmt fyr­ir­fram­gerðum samn­ing­um og geti vel unað við verðið.

Til­raun með ófrjó seiði

Aðal­eld­is­stöð Fisk­eld­is Aust­fjarða hef­ur til þessa verið í Beruf­irði. Þar hef­ur fyr­ir­tækið leyfi til að fram­leiða 10 þúsund tonn af laxi, í sam­ræmi við metið burðarþol fjarðar­ins, og mun full­nýta það á næstu árum. Þá eru leyfi fyr­ir eldi í Stöðvarf­irði og Seyðis­firði í um­sókn­ar­ferli. Fyr­ir­tækið á hlut í stórri seiðastöð í Þor­láks­höfn og er að byggja upp seiðastöðvar í Keldu­hverfi og á Kópa­skeri und­ir nafni Ri­fóss.

Fisk­eldi Aust­fjarða hef­ur sótt um leyfi til að fram­leiða sjö þúsund tonn af laxi í Stöðvarf­irði, í sam­ræmi við burðarþol fjarðar­ins. Þá hef­ur það sótt um eldi á 10 þúsund tonna fram­leiðslu í Seyðis­firði.

Vegna áhættumats Haf­rann­sókna­stofn­un­ar þarf all­ur lax­inn sem al­inn verður í Stöðvarf­irði að vera ófrjór og 3.500 tonn af lax­in­um sem al­inn verður í Seyðis­firði. Bæði áformin eru vita­skuld háð leyf­um.

Þótt leyfi hafi ekki enn feng­ist fyr­ir eldi í þess­um fjörðum er Fisk­eldi Aust­fjarða byrjað að búa sig und­ir að geta nýtt þau. Seiðastöð sem fyr­ir­tækið er að byggja upp á Kópa­skeri verður skipu­lögð með þeim hætti. Nú þegar eru ófrjó seiði í eldi og vegna þess að leyfi hafa ekki feng­ist í Stöðvarf­irði og Seyðis­firði verða þau vænt­an­lega sett út í Beruf­irði, til að afla reynslu. Verður þetta fyrsti ófrjói lax­inn sem fer í eldi hér á landi. „Við telj­um okk­ur geta gert þetta með góðum ár­angri og verður spenn­andi að sjá hvernig eldið kem­ur út,“ seg­ir Guðmund­ur.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: