Verð á laxi heldur áfram að sveiflast mikið

Markaðsverð á laxi heldur áfram að lækka.
Markaðsverð á laxi heldur áfram að lækka. mbl.is/Helgi Bjarnason

Markaðsverð á eld­islaxi held­ur áfram að lækka og nam meðal­verð 44,99 norsk­um krón­um á kíló, jafn­v­irði 680 ís­lenskra króna, í viku 31 sam­kvæmt vísi­tölu Nas­daq. Er það lækk­un um 2,53% frá vik­unni á und­an og 23,5% lækk­un á síðastliðnum fjór­um vik­um. Ef litið er til lax í slátr­un­ar­stærð, þrjú til sex kíló, hef­ur meðal­verð lækkað um 2,09% í viku 31 og 24,88% á und­an­förn­um fjór­um vik­um.

Þann 9. júní sögðu 200 míl­ur frá því að verð hafði hækkað um 40% á fjór­um vik­um og er því óhætt að segja að sveifl­urn­ar hafa verið um­fangs­mikl­ar.

Þegar þró­un­in er skoðuð með til­lit til und­an­far­inna tólf vikna lækk­ar verð mun minna eða 7,45% að meðaltali og 9,4% ef aðeins er litið til fiska í slátr­un­ar­stærð. Fyr­ir tólf vik­um var verð í mik­illi lægð í kjöl­far verðlækk­ana sem komu þegar lok­an­ir vegna kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins voru í há­marki.

Þegar tak­mörk­un­um var aflétt tók verð á mörkuðum við sér mjög hratt, en verðið tók að lækka á ný um miðjan júní þegar veit­ingastaðir og versl­an­ir í Pek­ing, höfuðborg Kína, hættu að selja lax í kjöl­far þess að kór­ónu­veira greind­ist á skurðbrett­um hjá heild­sala í borg­inni og hélt þró­un­in áfram og hef­ur verð ekki verið lægra síðan mánaðar­mót­in sept­em­ber októ­ber í fyrra.

mbl.is