Boðar til fundar í Herjólfsdeilunni

Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari er búinn að boða til fundar í …
Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari er búinn að boða til fundar í kjaradeilu Sjómannafélags Íslands fyrir hönd skipverja Herjólfs og Herjólfs ohf. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aðal­steinn Leifs­son hef­ur boðað samn­inga­nefnd­ir Sjó­manna­fé­lags Íslands og Herjólfs ohf. á fund næst­kom­andi þriðju­dag, 25. ág­úst, klukk­an tíu. Deiluaðilar vísuðu kjara­deil­unni til rík­is­sátta­semj­ara í gær. Þetta staðfest­ir Aðal­steinn í sam­tali við mbl.is.

Rík­is­sátta­semj­ari var með kjara­deil­una á sínu borði fyrr í sum­ar og tveir fund­ir fóru fram á þeim vett­vangi. Síðan ákváðu deiluaðilar að ræða mál­in án aðkomu rík­is­sátta­semj­ara og samþykktu viðræðuáætlun.

Í kjöl­farið funduðu samn­inga­nefnd­irn­ar tvisvar en á síðari fund­in­um, sem fór fram í gær, var niðurstaðan sú að vísa kjara­deil­unni aft­ur til rík­is­sátta­semj­ara.

„Menn eru bún­ir að funda í tvígang um hana [viðræðuáætlun­ina] og niðurstaðan er sú að menn ná ekki sam­an á þeim grund­velli þannig að rík­is­sátta­semj­ari þarf að koma að mál­um og leiða menn í gegn­um þetta,“ seg­ir Guðbjart­ur Ell­ert Jóns­son, fram­kvæmda­stjóri Herjólfs ohf., í sam­tali við mbl.is eft­ir fund­inn í gær.

mbl.is