Leggja til stækkun landeldis við Grindavík

Í eldisstöðinni í Landssveit, og í nýju stöðinni í Grindavík …
Í eldisstöðinni í Landssveit, og í nýju stöðinni í Grindavík hefur Matorka ræktað bleikju. Stefnt er að því að stækka eldið til muna. Ljósmynd/Óli Haukur Mýrdal

Mat­væla­stofn­un hef­ur unnið til­lögu að nýju rekstr­ar­leyfi fyr­ir land­eldi Matorku ehf. sem staðsett er í grennd við Grinda­vík. Um er að ræða nýtt rekstr­ar­leyfi fyr­ir 6.000 tonna há­marks­líf­massa vegna mat­fisk­eldi á laxi, bleikju og regn­bogasil­ungi, að því er seg­ir á vef Mat­væla­stofn­un­ar.

Til­efni til­lögu að nýju leyfi eru stækk­un­ar­áform fyr­ir­tæk­is­ins, en gild­andi rekstr­ar­leyfi nær til 3.000 tonna fram­leiðslu á laxi, bleikju, regn­bogasil­ungi og borra.

Matorka lagði fram frummats­skýrslu um stækk­un fisk­eld­is fyr­ir­tæk­is­ins í Húsatóft­um úr 3.000 tonn­um í 6.000 tonn til at­hug­un­ar hjá Skipu­lags­stofn­un þann 23. júlí 2018. Frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um vegna til­lögu Mat­væla­stofn­un­ar 18. sept­em­ber.

Verndað hraun

Í áliti Skipu­lags­stofn­un­ar um um­hverf­isáhrif fram­kvæmd­anna seg­ir að nokk­ur óvissa er í kring­um áhrif á líf­ríkið í fjör­unni þar sem frá­rennsli mun vera dælt frá eld­is­stöðinni, en það sé háð því hvaða lausn verður val­in við lagn­ingu frá­rennslislagna. Sama óvissa er í til­felli fugla­lífs, en áhrif á þann þátt mun meðal ann­ars ráðast af ástandi fjör­unn­ar.

Tel­ur stofn­un­in væn­leg­asta kost­inn vera „að leggja út­rás út fyr­ir stór­straums­fjöru­borð sem sé í sam­ræmi við reglu­gerð um frá­veit­ur og skólp. Skipu­lags­stofn­un tel­ur að í starfs­leyfi sé unnt að setja skil­yrði um hreins­un og fyr­ir­komu­lag frá­rennsl­is sem miði að því að áhrif þess á líf­ríki fjöru sem og sjáv­ar verði ekki veru­leg.“

Jafn­framt tel­ur stofn­un­in að fyr­ir­hugaðar fram­kvæmd­ir vegna stækk­un­ar­inn­ar muni hafa í för með sér tals­verð rask á eld­hrauni sem nýt­ur vernd­ar sam­kvæmt lög­um um nátt­úru­vernd. Staðbund­in áhrif eru sögð „tals­vert nei­kvæð […] á jarðmynd­an­ir sem njóta vernd­ar sem séu óaft­ur­kræf.“

mbl.is