Raunveruleikastjarnan Kelly Osbourne fór í magaermaraðgerð fyrir 2 árum og léttist í kjölfarið um 38 kíló. Hún segist ekki skammast sín fyrir að hafa farið í agerðina.
Osbourne var gestur Dax Holt og Adam Glyn í hlaðvarpsþáttunum Hollywood Raw í síðustu viku. Þar ræddi hún um þær sögusagnir að hún hafi farið í lýtaaðgerð. „Ég gerði það og ég er stolt af því. Ég fór í magaermi. Það eina sem gert er í henni er að breyta lögun magans. Ég fór í hana fyrir um tveimur árum. Ég mun aldrei nokkurn tímann ljúga um það. Þetta er það besta sem ég hef gert,“ sagði Osbourne.
Hún lagði áherslu á það í viðtalinu að í kjölfar aðgerðarinnar hafi hún þurft að breyta algjörlega um lífsstíl.
„Ef þú hreyfir þig ekki og borðar ekki rétt eftir svona aðgerð eins og ég fór í, þá muntu þyngjast. Þetta hjálpar þér bara að færast í rétta átt. Þannig að ef einhver er að pæla í að fara í svona aðgerð, pældu virkilega í því,“ sagði Osbourne.
Hún segist hafa glímt við ákveðna tegund af matarfíkn þar sem hún borðaði tilfinningar sínar. Með aðgerðinni hafi löngunin í að borða tilfinningar sínar hafi horfið. Aðgerðin hafi þó ekki leyst allan hennar vanda en virkilega hjálpað henni að færast í rétta átt.
Osbourne beið með að fara í aðgerðina í eitt ár. Á þessu ári vann Osbourne í sjálfri sér. „Það fyrsta sem ég þurfti að gera var að verða hamingjusöm. Ég þurfti að laga hausinn áður en ég gat lagað líkamann. Þú getur ekki farið í svona aðgerð ef hausinn er ekki rétt skrúfaður á,“ segir Osbourne.
View this post on InstagramA post shared by Kelly Osbourne (@kellyosbourne) on Jun 27, 2020 at 7:09pm PDT