Laxeldisfyrirtæki sektað um 910 milljónir í Síle

Umhverfisstofnun Chile hefur sektað laxeldisfyrirtækið Mowi um 910 milljónir íslenskra …
Umhverfisstofnun Chile hefur sektað laxeldisfyrirtækið Mowi um 910 milljónir íslenskra króna eftir 690 þúsund laxar sluppu úr sjókvíum fyrirtækisins árið 2018. AFP

Um­hverf­is­stofn­un Síle hef­ur ákveðið að sekta norska lax­eld­isris­ann Mowi um 5,3 millj­arða sí­leskra pesóa, jafn­v­irði 910 millj­óna ís­lenskra króna. Um er að ræða hæstu sekt sem veitt hef­ur verið fyr­ir um­hverf­is­brot í Suður-Am­er­íku.

Málið má rekja til þess að í óveðri árið 2018 sluppu 690 þúsund lax­ar úr sjókví­um við Punta Redonda í Los Lagos-héraði í Síle, um þúsund kíló­metra suður af höfuðborg­inni Santiago.

Stofn­un­in seg­ir í til­kynn­ingu að at­vikið hafi or­sakað „óbæt­an­leg um­hverf­is­spjöll“ og er vísað til þess að lax­in­um hafi verið gefið sýkla­lyf sem ekki er ætlað til mann­eld­is og fisk­ur­inn sé fram­andi rán­dýr sem sé lík­legt til þess að hafa skaðleg áhrif á svæðis­bundn­ar teg­und­ir auk þess sem hann kunni að breyta búsvæðum sjáv­ar.

Sí­leska um­hverf­is­stofn­un­in tel­ur einnig að þetta hafi í för með sér hættu hjá öðrum eld­is­stöðvum þar sem strokulax­inn geti borið með sér sýkla og sjúk­dóma.

Þá var Mowi jafn­framt sektað um 2,7 millj­ón­ir pesóa, jafn­v­irði um 474 þúsund ís­lenskra króna, fyr­ir búa ekki yfir full­nægj­andi slátr­un­araðstöðu til þess að farga dauðum fiski. Mowi hef­ur ekki brugðist við sekt­inni að svo stöddu en hef­ur tvær vik­ur til þess að áfrýja henni.

Lax­eld­isiðnaður­inn í Síle er sá næst­stærsti í heimi á eft­ir Nor­egi en not­ar 1.400 sinn­um meira af sýkla­lyfj­um á hvert fram­leitt tonn en eld­is­stöðvar í Nor­egi, að sögn um­hverf­is­sam­tak­anna Oce­ana.

mbl.is