Stór fóðurprammi á Reyðarfjörð

Fóðurpramminn sem Laxar fiskeldi hafa keypt mun þjóna fiskeldiskvíum í …
Fóðurpramminn sem Laxar fiskeldi hafa keypt mun þjóna fiskeldiskvíum í Reyðarfirði og verða þar sem framleiðslan er mest hverju sinni.

Lax­ar fisk­eldi hafa fest kaup á stór­um fóðurpramma frá fyr­ir­tæk­inu Akva Group í Nor­egi. Pramm­inn er með þeim stærstu sem hingað hafa verið keypt­ir, ásamt Arn­ar­borg sem Arn­ar­lax not­ar á Vest­fjörðum, og er til­gang­ur Laxa að geta sinnt auknu lax­eldi fyr­ir­tæk­is­ins í Reyðarf­irði.

Fóðurpramm­inn ber allt að 650 tonn af fóðri í tólf geym­um og er með tólf fóðrun­ar­lín­ur út í kví­ar, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Lax­ar fisk­eldi eru með leyfi til að fram­leiða allt að 9 þúsund tonn af laxi í Reyðarf­irði og seg­ir Gunn­ar Steinn Gunn­ars­son fram­leiðslu­stjóri að mark­miðið sé að kom­ast upp í sex­tán þúsund tonn á næstu árum. Það er vel inn­an við burðarþol fjarðar­ins sem metið er 20 þúsund tonn. Fyr­ir­tækið hef­ur hug á að nýta það til fulls í framtíðinni. „Stærðar­hag­kvæmni fæst með auk­inni fram­leiðslu og hún er mik­il­væg til þess að lækka fram­leiðslu­kostnað og standa und­ir þjón­ustu sem við kaup­um af öðrum,“ seg­ir Gunn­ar Steinn.

Spurður um mik­il­vægi þess að fá stór­an og vel tækj­um bú­inn fóðurpramma seg­ir Gunn­ar að fyr­ir­tækið sé ekki með aðstöðu í landi til að geyma fóður og þess vegna þurfi fóðurpramm­arn­ir að geta borið mikið magn. Þá sé nýi pramm­inn, sem vænt­an­leg­ur er til lands­ins næsta vor, með kjöl­festutanka sem notaðir eru til að halda hon­um í jafn­vægi í sjón­um þegar geng­ur á fóðrið.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: