Munar um framleiðsluna hjá Arctic Fish

Seiðastöð Arctic Fish í Tálknafirði er sú fullkomnasta hér og …
Seiðastöð Arctic Fish í Tálknafirði er sú fullkomnasta hér og skapar grunn fyrir áframhaldandi vöxt.

Arctic Fish var rekið með liðlega 40 millj­óna króna hagnaði fyrstu sex mánuði árs­ins. Kem­ur það fram í fjár­festa­kynn­ingu vegna hálfs­árs­upp­gjörs Norway Royal Salmon (NRS) sem er stærsti eig­andi að vest­firska fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­inu.

Arctic Fish hef­ur verið í upp­bygg­ing­ar­ferli í níu ár og er þetta í fyrsta skipti sem upp­gjör sýn­ir hagnað. Árið er að vísu ekki búið og ljóst að kór­ónu­veir­an hef­ur áhrif á af­komu fyr­ir­tæk­is­ins á seinni hluta árs­ins.

NRS á helm­ing hluta­fjár í Arctic Fish og sér sam­stæðan tæki­færi til vaxt­ar á Íslandi. Áætlað er að eig­in fram­leiðsla NRS í Nor­egi verði í ár 35 þúsund tonn og heild­ar­fram­leiðsla Arctic Fish 8.200 tonn. Hef­ur fram­leiðslan á Íslandi því veru­leg áhrif á sam­stæðuna enda telst Norway Royal Salmon ekki til fisk­eld­isris­anna í Nor­egi. Arctic Fish er í vexti og seg­ir Sig­urður Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri hjá fé­lag­inu, að stefnt sé að því að Arctic nái sömu stærð og NRS á næstu árum, þegar það hef­ur fengið þau fram­leiðslu­leyfi sem sótt hef­ur verið um.

Um­hverf­is­mati fyr­ir stækk­un í Dýraf­irði er lokið sem og mati vegna eld­is í Arnar­f­irði og er beðið starfs- og rekstr­ar­leyfa. Nýja seiðaeld­is­stöðin í Tálknafirði, sú tækni­lega full­komn­asta hér á landi, skap­ar góðan grunn fyr­ir vöxt hjá Arctic Fish, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um þessi mál í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: