Fyrirtækið Arctic Sea Farm (dótturfélag Arctic Fish) hefur fengið rekstrarleyfi frá Matvælastofnun til fiskeldis við Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi. Stofnunin auglýsti tillögu að rekstrarleyfi Arctic Sea Farm á vef sínum í maí síðastliðnum og rann frestur út til þess að skila athugasemdum um leyfisveitinguna í júní.
Sótt var um leyfi fyrir 5.300 tonna hámarkslífmassa af regnbogasilungi en fyrirtækið hafði áður leyfi til framleiðslu á 200 tonnum af laxi og regnbogasilungi í sjókvíaeldi. Starfsemin er einnig háð leyfi Umhverfisstofnunnar en tekið er fram í tilkynningu Matvælastofnunar að eldið rúmist innan burðarþolsmats Ísafjarðardjúps.