Fá regnbogaleyfi í Djúpinu

Bjarnarnúp á Snæfjallaströnd.
Bjarnarnúp á Snæfjallaströnd. mbl.is/RAX

Mat­væla­stofn­un hef­ur veitt Arctic Fish rekstr­ar­leyfi til eld­is á allt að 5.300 tonn­um af regn­bogasil­ungi í sjókví­um við Snæfjalla­strönd í ut­an­verðu Ísa­fjarðar­djúpi. Um­sókn fyr­ir­tæk­is­ins um leyfi til lax­eld­is á sama stað er á loka­stig­um um­hverf­is­mats.

Fram­kvæmda­stjóri hjá Arctic Fish seg­ir að fyr­ir­tækið eigi seiði til að hefja þar lax­eldi næsta sum­ar en það sé háð því að leyfi fá­ist. 

Háa­fell, dótt­ur­fé­lag Hraðfrysti­húss­ins – Gunn­var­ar, fékk í sum­ar leyfi til eld­is á um 7.000 tonn­um af regn­bogasil­ungi í inn­an­verðu Djúp­inu. Setti fyr­ir­tækið um 170 þúsund seiði út í sjókví­ar í júní. Leyfi beggja fyr­ir­tækj­anna rúm­ast inn­an burðarþols­mats Ísa­fjarðar­djúps sem er um 30 þúsund tonn, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: