Árni Friðriksson heldur í leit að loðnu

Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson
Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson mbl.is/Þorgeir

Fyr­ir­komu­lag loðnu­leit­ar í haust og vet­ur var til umræðu á fundi sem Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, boðaði til í gær með full­trú­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar og Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Á fund­in­um fóru full­trú­ar Haf­rann­sókna­stofn­un­ar yfir fyr­ir­hugaða leit.

Þar kom fram að haf­rann­sókna­skipið Árni Friðriks­son held­ur í haust­leiðang­ur á mánu­dag­inn og stend­ur hann yfir í 22 daga. Jafn­framt mun rann­sókn­ar­skip á veg­um Græn­lend­inga taka þátt í leiðangr­in­um. Munu skip­in leita í sept­em­ber og októ­ber fyr­ir norðan og vest­an land en einnig langt norður með aust­ur­strönd Græn­lands. Er til­gang­ur leiðang­urs­ins að meta stærð loðnu­stofns­ins og veita end­ur­skoðaða ráðgjöf um há­marks­afla á kom­andi vertíð.

Þetta kem­ur fram á vef sjáv­ar­út­vegs­ráðuneyt­is­ins. 

Fram kem­ur, að eng­ar loðnu­veiðar hafi verið stundaðar síðustu tvær vertíðar og stofn­inn hafi verið í lægð frá því að hlýna tók á Íslands­miðum um síðustu ald­ar­mót. 

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, leggur áherslu á mikilvægi …
Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, legg­ur áherslu á mik­il­vægi þess að samstaða sé um fyr­ir­komu­lag leit­ar­inn­ar og að all­ir aðilar rói í sömu átt. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

„Fyr­ir ligg­ur ráðgjöf Alþjóðahaf­rann­sókn­aráðsins (ICES) frá því í nóv­em­ber 2020 um veiðar á allt að 169.520 tonn­um á loðnu­vertíðinni 2020/​21.  Bygg­ir ráðgjöf­in á sam­eig­in­legri nýt­ing­ar­stefnu Íslands, Græn­lands og Nor­egs og sam­kvæmt henni er upp­hafsafla­mark vertíðar­inn­ar 169.520 tonn. Í ráðgjöf­inni kem­ur fram að hún verði end­ur­skoðuð að lokn­um rann­sókn­um í sept­em­ber 2020.  Samn­ing­ur er um skipt­ingu loðnu­stofns­ins milli Íslands, Græn­lands og Nor­egs og fær Ísland 80% af ráðlögðum afla, Græn­land 15% og Nor­eg­ur 5%.“

Á fund­in­um lagði Kristján Þór áherslu á mik­il­vægi þess að samstaða væri um fyr­ir­komu­lag leit­ar­inn­ar og að all­ir aðilar þyrftu að róa í sömu átt. Vísaði hann til þess að aldrei hef­ur verið lagður meiri kraft­ur í leit að loðnu en á und­an­förn­um tveim­ur árum Ein­hug­ur væri um að fylgja eft­ir þeirri áherslu á kom­andi miss­er­um, að því er seg­ir í frétt ráðuneyt­is­ins. 

mbl.is