Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, segir mikilvægt að tryggja að endurreisn efnahags og samfélags eftir Covid-19 faraldurinn byggi á grænum lausnum. Þetta sagði Guðmundur á fundi umhverfis- og fjármálaráðherra OECD í dag, og fjallað er um á vef ráðuneytisins.
Þar segir einnig, að viðbrögð íslenskra stjórnvalda við faraldrinum séu með sterkum grænum áherslum, m.a. sé gert ráð fyrir enn hraðari uppbyggingu innviða fyrir orkuskipti á sjó og landi og aukinni kolefnisbindingu með landgræðslu og skógrækt, hraðari innleiðingu hringrásarhagkerfis, endurheimt vistkerfa og nýsköpun.
Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, stendur fyrir fundaröð ráðherra um ákveðin áherslumál í aðdraganda ráðherrafundar stofnunarinnar í haust. Á fundinum í dag var sérstaklega rætt um umhverfismál í tengslum við áform um endurræsingu efnahagslífsins eftir faraldurinn. Fundurinn fór fram í gegnum fjarfundabúnað.
„OECD segir að nú sé einstakt tækifæri til þess að samþætta grænar áherslur í uppbyggingu efnahagslífsins, svo árangur náist til langs tíma. OECD metur m.a. að niðurgreiðslur á jarðefnaeldsneyti hafi numið 582 milljörðum Bandaríkjadala árið 2019 á heimsvísu. Nauðsynlegt sé að draga úr slíkum niðurgreiðslum og beina fjármagni í endurnýjanlega orkugjafa. Hrein orkuskipti geti skapað störf; öflug uppbygging endurnýjanlegrar orku geti skapað um 40 milljónir starfa á heimsvísu á komandi áratugum. Þá þurfi umskiptin að vera sanngjörn og útfærð með þeim hætti að ekki bitni á þeim fátækari í samfélaginu,“ segir í tilkynningunni.